Hoppa yfir valmynd
29. mars 2019 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frítekjumark námsmanna hækkar um 43%

Frítekjumark námsmanna hækkar um 43% og fer úr 930.000 kr. á ári í 1.330.000 kr. samkvæmt nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir námsárið 2019/2020. Hækkun þessi kemur til móts við óskir námsmanna sem bent hafa á að frítekjumarkið hafi ekki verið hækkað í takt við verðlagsbreytingar og launahækkanir síðan árið 2014.

Í farvatninu er umfangsmikil kerfisbreyting á fyrirkomulagi Lánasjóðs íslenskra námsmanna en ráðgert er að nýtt frumvarp um sjóðinn verði lagt fram á Alþingi í haust. Breytingarnar felast meðal annars í því að námsstyrkur ríkisins verði gagnsærri og meira jafnræði verði meðal námsmanna og mun nýju kerfi þannig svipa meira til norrænna námsstyrkjakerfa. Stefnt er að því að nýtt stuðningskerfi taki gildi frá og með haustinu 2020.

Námsaðstoðin sem sjóðurinn mun veita verður áfram í formi lána á hagstæðum kjörum og til viðbótar verða beinar styrkjagreiðslur vegna framfærslu barna og 30% niðurfelling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma. Stefnt er að því að bæta fjárhagsstöðu nemenda, ekki síst þeirra sem hafa börn á framfæri, og hvetja nemendur til að klára nám sitt á tilsettum tíma. Í því felst ávinningur fyrir námsmenn sem og þjóðhagslegur ávinningur fyrir samfélagið allt sem útreikningar gera ráð fyrir að geti numið allt að 1,2 milljörðum kr. á ári.

Úthlutunarreglurnar má nálgast hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum