Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2019 Dómsmálaráðuneytið

Íslenska ríkið óskar eftir endurskoðun yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu

Dómsmálaráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag ákvörðun sína um að íslenska ríkið myndi óska eftir endurskoðun yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu á dómi MDE í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi sem féll þann 12. mars sl. Í málinu komst meirihluti dómsins að þeirri niðurstöðu að annmarkar á meðferð ráðherra og Alþingis við skipun eins dómara við Landsrétt fælu í sér brot gegn áskilnaði 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) um að skipan dómstólsins sé ákveðin með lögum. 

 

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmálaráðherra: „Við höfum síðustu vikur skoðað mismunandi fleti þessa mikilvæga máls. Eftir þá skoðun tel ég rétt að óska endurskoðunar hjá yfirdeild Mannréttindadómstólsins. Ég tel brýnt að fara þessa leið í ljósi þess hve mikilvæga hagsmuni málið snertir hér á landi. Ég mun halda áfram að skoða aðra fleti málsins en á þessu stigi verða ekki teknar frekari ákvarðanir.”

Dómur MDE hefur ekki aðeins áhrif hér á landi heldur einnig um alla Evrópu, hvað varðar spurningar um það hvort skipan dómstóla sé ákveðin með lögum í þeim skilningi sem lagður er til grundvallar í niðurstöðu meirihlutans. Það er einnig mat sérfræðinga dómsmálaráðuneytisins, að höfðu samráði við ríkislögmann og dr. Thomas Horn, málflutningsmann og sérfræðing í mannréttindum og réttarfari, að leita eigi endurskoðunar á dómi MDE enda vekur málið upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu.

 

Líkur standa til þess að niðurstaða um það hvort yfirdeildin taki dóminn til endurskoðunar fáist innan fárra mánaða. Taki yfirdeildin málið til endurskoðunar verður þess óskað að málið njóti forgangs en MDE hefur frá upphafi skilgreint málið mikilvægt og hlaut það flýtimeðferð á fyrri stigum.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum