Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2019 Innviðaráðuneytið

Slegið í gegn í nýjum Dýrafjarðargöngum

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Hreinn Haraldsson, fv. vegamálastjóri (t.v.), við hátíðarathöfn þegar sprengt var í gegn í nýjum Dýrafjarðargöngum. - myndVegagerðin/GPM

Mikilvægum áfanga var náð í dag þegar slegið var í gegn í nýjum Dýrafjarðargöngum. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sprengdi síðustu sprenginguna í göngunum við sérstaka hátíðarathöfn að viðstöddu fjölmenni.

Dýrafjarðargöng stytta leiðina milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar rúmlega 27 kílómetra og koma í staðinn fyrir einn hæsta og hrikalegasta fjallveg landsins, Hrafnseyrarheiði. Um er að ræða mikilvæga samgöngubót á Vestfjörðum en áætluð verklok eru haustið 2020.

„Verkið gengur vel og þegar einum áfanga er náð þá eykst þrýstingur á að aðrar samgöngurbætur haldi áfram. Vegur um Dynjandisheiði er á áætlun og vegur um Gufudalssveit þolir ekki lengri bið,“ sagði Sigurður Ingi að athöfninni lokinni.

Göngin 5,6 km löng
Framkvæmdin felur í sér lagningu nýs vegar og nýrra ganga á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörðum, frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði að Dýrafjarðarbrú; 8,1 km af nýjum vegi og 5,6 km löng göng. Því er um að að ræða 13,7 km langt vegstæði. Stytting á Vestfjarðarvegi verður 27,4 km.

Nánar um Dýrafjarðargöng á vef Vegagerðarinnar

Fjölmenni í nýjum Dýrafjarðargöngum.

Ráðherra leiðbeint fyrir viðhafnarsprengingu í Dýrafjarðargöngum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum