Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2019 Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness veitt í fyrsta sinn

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar Bókmenntahátíð í Reykjavík - mynd©Alexander Schwarz
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, tilkynnti að Ian McEwan hlyti bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í fyrsta sinn á Bókmenntahátíð í Reykjavík sem nú stendur yfir að viðstöddu fjölmenni í Veröld, húsi Vigdísar.

Forsætisráðuneytið, mennta- og menningarmálarráðuneytið, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Forlagið, sem er útgefandi verka Halldórs Laxness, og Gljúfrasteinn standa að hinum alþjóðlegu bókmenntaverðlaunum.

Tilefnið er ekki síst það að hundrað ár eru nú liðin frá því að Halldór Laxness gaf út sína fyrstu skáldsögu, Barn náttúrunnar. Verðlaunin eru veitt virtum erlendum rithöfundi fyrir endurnýjun sagnalistar og afhent á Bókmenntahátíð í Reykjavík, nú fyrst í apríl 2019 en síðan annað hvert ár eða árin 2021, 2023, 2025 og 2027.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Það er ánægja og heiður að fá að tilkynna um þessi verðlaun í fyrsta sinn. Valnefnd ákvað að Ian McEwan skyldi hljóta verðlaunin en hann hefur á 45 ára ferli sett mark sitt á bókmenntaheiminn með skáldsögum þar sem fengist er við erfið viðfangsefni og nýju ljósi varpað á mannlegt eðli, minni og minningar. Þá er ekki síður mikilvægt að kenna þessi verðlaun við Halldór Laxness sem haft hefur ómæld áhrif á íslenskan skàldskap allt frá útgáfu fyrstu skàldsögu sinnar, Barn náttúrunnar.”

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum