Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2019 Utanríkisráðuneytið

Ísland og UNESCO gera rammasamning um þróunarsamvinnu

Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri og Xing Qu, aðstoðarfrkvstj. UNESCO. - myndUNESCO/Fabrice GENTILE

Ísland og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hafa gert með sér samstarfssamning á sviði þróunarsamvinnu. Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Xing Qu, aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO, undirrituðu rammasamning þess efnis fyrr í vikunni. 

Rammasamningurinn er sá fyrsti sem Ísland og UNESCO gera um þróunarsamvinnu. Hann felur í sér að Ísland styður við tvö verkefni á vegum stofnunarinnar. Annars vegar er um að ræða framlag til verkefnis sem miðar að því að styrkja getu fátækra ríkja við að innleiða umbætur á sviði menntamála. Hins vegar er framlag til að stuðla að tjáningarfrelsi og öryggi blaðamanna í þróunarlöndum. Miðað er við að framlögin nýtist sérstaklega í starfi UNESCO í Afganistan, einu af áherslulöndum Íslands í þróunarsamvinnu, bæði til að bæta aðgengi að menntun þar í landi, sem og til að tryggja öryggi blaðamanna. 

„Menntun er undirstaða framfara og frjálsir fjölmiðlar ein af forsendum lýðræðis. Þess vegna er afar mikilvægt að styrkja hvort tveggja í ríkjum sem standa veikt. Ísland hefur mikið fram að færa í þessum efnum og því er mér það mikið fagnaðarefni að við höfum nú undirritað rammasamning við UNESCO á þessu sviði,“ segir Sturla Sigurjónsson ráðuneytisstjóri. 

Alls verja íslensk stjórnvöld um 174 milljónum króna á næstu fimm árum til þessara tveggja verkefna. Til viðbótar munu íslensk stjórnvöld senda íslenska sérfræðinga til starfa á vettvangi við innleiðingu ofangreindra verkefna og veita til þess um 45 milljónum króna.

Meginmarkmið UNESCO er að efla alþjóðlega samvinnu á sviði menntunar, vísinda og menningarmála. UNESCO ber höfuðábyrgð á því meðal alþjóðastofnana að innleiða fjórða heimsmarkmiðið um menntun, og gegnir einnig lykilhlutverki við innleiðingu annarra heimsmarkmiða. Markmið og áherslur UNESCO falla vel að stefnu Íslands í þróunarsamvinnu, sérstaklega hvað varðar menntamál, mannréttindi og jafnrétti kynjanna. 

 
  • Frá undirritun samningsins - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 4 Menntun fyrir alla
Heimsmarkmið Sþ: 17 Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum