Hoppa yfir valmynd
3. maí 2019 Matvælaráðuneytið

Skipað í starfshóp um aflaheimildir sem ríkið fer með forræði yfir

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað fimm manna starfshóp sem hefur það hlutverk að endurskoða meðferð og ráðstöfun aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir. Um er að ræða 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund sem tekið er til hliðar fyrir úthlutun aflamarks. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er þessum afla nú varið í strandveiðar, almennan og sértækan byggðakvóta, línuívilnun, rækju- og skelbætur og frístundaveiðar.

 

Starfshópnum er meðal annars falið að líta til þess hvort þeim markmiðum sem að var stefnt með þessum aflaheimildum hafi verið náð og eftir atvikum leggja til breytingar. Ber hópnum við þá vinnu að líta til eftirfarandi stefnumörkunar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur:

 

Vega þarf og meta fyrirkomulag þeirra aflaheimilda sem ríkið fer með forræði yfir, þ.m.t. strandveiða, með það að markmiði að tryggja betur byggðafestu og nýliðun.

 

Jafnframt skal starfshópurinn leitast við að tryggja að mögulegar breytingar hámarki virði þeirra verðmæta sem felast í umræddum aflaheimildum.

 

Starfshópurinn er þannig skipaður:

  • Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Akureyri, formaður
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður
  • Bergþóra Benediktsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra
  • Gunnar Atli Gunnarsson, aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Þorsteinn Víglundsson, alþingismaður

 

Starfshópurinn skal skila sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra greinargerð og tillögum eigi síðar en 1. nóvember 2019. Hópurinn skal í störfum sínum hafa samráð við helstu aðila sem hagsmuna hafa að gæta, m.a. Landssamband smábátaeigenda, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök smærri útgerða.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum