Hoppa yfir valmynd
22. maí 2019 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2019

Miðvikudaginn 15. maí 2019 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2019, sbr. reglugerð nr. 1025/2018.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta fyrir blómstrandi pottaplöntur í tollskárnúmeri (0602.9091) samtals 4.450 stk., á meðalverðinu 100 kr./stk.  Hæsta boð var 120 kr./stk. en lægsta boð var 72 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 119 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta fyrir aðrar pottaplöntur í tollskrárnúmeri (0602.9093) samtals 5.660 stk., á meðalverðinu 113 kr./stk.  Hæsta boð var 129 kr./stk. en lægsta boð var 83 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 126 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta fyrir tryggðablóm í tollskrárnúmeri (0603.1400) samtals 13.500 stk., á meðalverðinu 41 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 35 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 45 kr./stk.

Fimm tilboð bárust í tollkvóta fyrir afskorin blóm, í tollskrárnúmeri (0603.1909) samtals 288.750 stk. á meðalverðinu 28 kr./stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum í tollkvóta fyrir innflutning á 118.750 stk. á meðalverðinu 40 kr./stk.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2019

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

1.600

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

50

Húsasmiðjan Blómaval ehf

 

Aðrar pottaplöntur júlí - desember 2019

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

660

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

1.500

Grænn markaður ehf

 

Tryggðablóm júlí - desember 2019

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

1.200

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

5.300

Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm júlí - desember 2019

Magn (stk) 

Tilboðsgjafi

4.375

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

50.000

Grænn markaður ehf

64.375

Samasem ehf

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum