Hoppa yfir valmynd
27. maí 2019 Forsætisráðuneytið

Vegna umfjöllunar um Guðmundar- og Geirfinnsmálið

Í tilefni af umfjöllun í fjölmiðlum í dag telur forsætisráðuneytið rétt að fram komi að forsætisráðuneytið hefur ekki fengið skilagrein frá nefnd sem skipuð var til að leiða fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrum sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar þann 27. september síðastliðinn í endurupptökumáli og aðstandendur þeirra. Lítur ráðuneytið því hvorki svo á að sáttaviðræðum sé formlega lokið né hlutverki setts ríkislögmanns, sem falið var að ljúka málinu annað hvort á grundvelli breiðrar sáttar eða viðræðna við hvern og einn sem sýknaðir voru eða aðstandendur þeirra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum