Hoppa yfir valmynd
18. júní 2019 Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Viljayfirlýsing stjórnvalda, stóriðjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur um hreinsun og bindingu kolefnis

Viljayfirlýsing stjórnvalda, stóriðjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur um hreinsun og bindingu kolefnis - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og forstjórar/fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur, Elkem, Fjarðaáls, Rio Tinto á Íslandi og Norðuráls undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um kolefnishreinsun og -bindingu. Jafnframt stendur PCC á Bakka að yfirlýsingunni en munu undirrita yfirlýsinguna síðar.

Samkvæmt viljayfirlýsingunni verður kannað til hlítar hvort aðferð sem kölluð er „CarbFix“ geti orðið raunhæfur kostur, bæði tæknilega og fjárhagslega, til þess að draga úr losun koldíoxíðs (CO2) frá stóriðju á Íslandi. Þá munu fyrirtækin hvert um sig leita leiða til að verða kolefnishlutlaus árið 2040.

Orkuveita Reykjavíkur hefur þróað „CarbFix“ aðferðina í samstarfi við Háskóla Íslands og erlenda aðila frá árinu 2007. Aðferðin felst í því að CO2 er fangað úr jarðhitagufu, gasið leyst upp í vatni undir þrýstingi og vatninu dælt niður á 500-800 m dýpi í basaltjarðlög, þar sem CO2 binst varanlega í berggrunninum í formi steinda. Orka Náttúrunnar, dótturfélag OR, hefur nú rekið lofthreinsistöð og niðurdælingu við Hellisheiðarvirkjun samfellt í 5 ár með góðum árangri.

Þörf er á víðtæku samstarfi til að takast á við loftslagsvandann en samstarf atvinnulífs og stjórnvalda getur haft mikil áhrif, bæði hér á landi og á alþjóðavísu. Viljayfirlýsingin er enn eitt skref í þá átt og er í samræmi við áherslur samkomulags um samstarfsvettvang stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir, sem var undirritað 28. maí sl.

 

Viljayfirlýsing stjórnvalda, stóriðjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur um hreinsun og bindingu kolefnis.

  • Frá undirritun viljayfirlýsingar um kolefnishreinsun og -bindingu - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum