Hoppa yfir valmynd
4. september 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Félags- og barnamálaráðherra undirritar samninga vegna móttöku flóttafólks

  Frá vinstri: Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Magnús Örn Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness. - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag samninga við Garðabæ og Seltjarnarnes um móttöku flóttafólks frá Kenía. Um er að ræða 25 einstaklinga sem eru staðsettir í Kenía en koma frá Úganda, Rúanda, Kongó, Súdan og Simbabve. Hópurinn kemur til landsins 12. september. Er þetta í fyrsta sinn sem Garðabær og Seltjarnarnes taka á móti kvótaflóttafólki. Fyrirhugað er að Mosfellsbær taki einnig á móti hluta hópsins og er sveitarfélagið að gera það í annað sinn.

Um er að ræða einstaklinga sem hafa þurft að flýja heimalönd sín vegna kynhneigðar og er þetta í þriðja sinn sem íslensk stjórnvöld taka á móti hinsegin flóttafólki, en móttakan er í samvinnu við sveitarfélög og Rauða krossinn á Íslandi. Mikil ánægja hefur verið á meðal móttökusveitarfélaga með góðan árangur af móttöku þess. Samkvæmt samningunum er greidd framfærsla og sérstakur stuðningur vegna skólagöngu, íslenskukennslu, samfélagsfræðsla og túlkaþjónustu svo dæmi séu nefnd.

Hinsegin flóttafólki hefur fjölgað í heiminum en í dag  er samkynhneigð bönnuð samkvæmt lögum í yfir sjötíu löndum. Dauðarefsing vegna samkynhneigðar er hámarksrefsing í ellefu þeirra. Í ljósi sérstöðu hópsins var einnig undirritaður samningur við Samtökin 78 um ráðgjöf og fræðslu til flóttafólksins, sveitarfélaganna sem um ræðir og Rauða krossins á Íslandi og sjálfboðaliða þeirra.

Hinn 12. október síðastliðinn samþykkti ríkisstjórnin að tekið yrði á móti allt að 75 flóttamönnum árið 2019. Fyrri hópurinn kom til landsins í apríl en þá var tekið á móti 50 einstaklingum frá Sýrlandi og eru þeir nú búsettir á Hvammstanga, á Blönduósi og í Árborg. Ekki hefur verið tekið á móti fleiri flóttafólk síðan 1999 þegar tekið var á móti 75 einstaklingum frá Kosovo.     

„Það er fagnaðarefni að sveitarfélög séu jákvæð þegar kemur að því að taka á móti fólki á flótta. Frumkvæði sveitarfélaga og gott samstarf allra hlutaðeigandi aðila er ástæða þess að  vel hefur tekist til við móttöku flóttafólks á undanförnum árum,“ sagði Ásmundur Einar við undirritunina.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum