Hoppa yfir valmynd
19. september 2019 Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir fluttar í starf varaseðlabankastjóra


Rannveig Sigurðardóttir og Unnur Gunnarsdóttir hafa verið fluttar í starf varaseðlabankastjóra. Í nýjum lögum um Seðlabanka Íslands, sem samþykkt voru í júní sl, er kveðið á um að skipaðir verði þrír varaseðlabankastjórar til fimm ára í senn. Einn varaseðlabankastjórinn leiði málefni sem varða peningastefnu, annar málefni sem varða fjármálastöðugleika og sá þriðji málefni sem varða fjármálaeftirlit.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur flutt Rannveigu Sigurðardóttur í starf varaseðlabankastjóra peningastefnu frá og með 1. janúar 2020 með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði nýju laganna. Þar kemur fram að embætti aðstoðarseðlabankastjóra verði lagt niður þegar lögin öðlast gildi um næstu áramót og að forsætisráðherra sé heimilt án auglýsingar að flytja núverandi aðstoðarseðlabankastjóra í nýtt embætti varaseðlabankastjóra.

Þá hefur Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutt Unni Gunnarsdóttur í starf varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits frá og með 1. janúar 2020 með hliðsjón af bráðabirgðaákvæði laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Þar kemur fram að embætti forstjóra Fjármálaeftirlitsins verði lagt niður þegar sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins öðlast gildi um næstu áramót og að fjármála- og efnahagsráðherra sé heimilt án auglýsingar að flytja forstjóra Fjármálaeftirlitsins í nýtt embætti varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum