Hoppa yfir valmynd
25. september 2019 Forsætisráðuneytið

Leiðtogafundur um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og vettvangur um viðskipti og sjálfbæra þróun

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sat opnun á leiðtogafundi um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur leiðtogafundur er haldinn frá því markmiðin voru samþykkt árið 2015. Þá stýrði forsætisráðherra pallborðsumræðum í dag ásamt Carlos Alvarado Quesada, forseta Kosta Ríka um heimsmarkmiðin.

Í gær fundaði forsætisráðherra með Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherrarnir ræddu loftslagsmál og mögulegt samstarf ríkjanna á því sviði, samstarf þjóðanna um velsældarhagkerfi og Heimsþing jarðhitans sem haldið verður á Íslandi á næsta ári. Þá ræddu ráðherrarnir um jafnréttismál og aðgerðir gegn heimilisofbeldi.

Þá tók forsætisráðherra þátt í kynningu á áformum nokkurra ríkja um samning um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun að frumkvæði nýsjálenskra stjórnvalda í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Auk Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, voru forsætisráðherrar Noregs og Fiji viðstaddir fundinn auk aðstoðar-utanríkisviðskiptaráðherra Kosta Ríka.

Ríkin ætla að vinna saman að samningi um afnám tolla á umhverfisvænar vörur, afnám niðurgreiðslna á jarðefnaeldsneyti og umhverfismerkingar. Með samningnum hyggjast ríkin sýna í verki vilja sinn til að vinna gegn loftslagsbreytingum af völdum alþjóðaviðskipta. Hingað til hefur ekki náðst samstaða um slíkt á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar en gert er ráð fyrir að samningaviðræðurnar hefjist snemma árs 2020.

Forsætisráðherra var einnig viðstödd opnun almennrar umræðu í allsherjarþinginu í gær, sat hádegisverð í boði António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og sótti móttöku í boði forseta Bandaríkjanna í tengslum við allsherjarþingið.


  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á leiðtogafundi um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í New York  - mynd
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum