Hoppa yfir valmynd
26. september 2019 Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Nýskipað ungmennaráð heimsmarkmiðanna kemur saman í fyrsta sinn

Ungmennaráð heimsmarkmiðanna ásamt Veru Knútsdóttur, framkvæmdastjóra Félags Sameinuðu þjóðanna - mynd

Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna fundaði í utanríkisráðuneytinu í dag. Um var að ræða fyrsta fund nýskipaðs ungmennaráðs en þetta er í annað sinn sem skipað er í ráðið. Á þessum fyrsta fundi fengu nýir fulltrúar meðal annars kynningu frá Félagi Sameinuðu þjóðanna og frá formanni verkefnastjórnar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna auk þess sem þau ræddu verklag og verkefni ráðsins í vetur.

Á síðasta starfsári tók ungmennaráð heimsmarkmiðanna meðal annars þátt í hátíðardagskrá 1. desember, flutti ávarp á heimsþingi kvenleiðtoga og þá tóku tveir fulltrúar þátt í kynningu Íslands á innleiðingu heimsmarkmiðanna hér á landi á ráðherrafundi í New York í júlí síðastliðnum.
Ungmennaráðið samanstendur af tólf fulltrúum, víðs vegar að af landinu, á aldursbilinu 13-18 ára. Það fundar sex sinnum á ári og þar á meðal árlega með ríkisstjórn. Hlutverk ráðsins er að fræðast og fjalla um heimsmarkmiðin ásamt því að vinna og miðla gagnvirku efni á samfélagsmiðlum um markmiðin og sjálfbæra þróun. Ungmennaráðið veitir jafnframt stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, aðhald og ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna.

Hægt er að fylgjast með störfum ungmennaráðsins á Facebook síðu þess og þá er hægt að hafa samband við ráðið í gegnum [email protected].


Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum