Hoppa yfir valmynd
30. október 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Norræn ráðstefna á Grand Hótel: Nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu

Norræn ráðstefna um nýjar áskoranir á vinnumarkaði og í vinnuumhverfinu verður haldin á Grand Hótel 7. nóvember næstkomandi undir yfirskriftinni „The Working Conditions of Tomorrow.“

Á síðustu árum hefur íslenskur og norrænn vinnumarkaður breyst mikið og orðið flóknari. Víða hefur verið mikil eftirspurn eftir vinnuafli sem hefur kallað á nýjar áskoranir á vinnumarkaði vegna mikillar fjölgunar erlendra starfsmanna, skammtímaráðninga og fjölbreyttra ráðningarforma. Jafnframt er aldursamsetning þjóðarinnar að breytast, ungum fækkar og eldri starfsmönnum fjölgar. Erlendir
starfsmenn eru síður upplýstir um íslenskt vinnuumhverfi og rétt sinn á vinnumarkaðnum. Slíkt eykur líkur á félagslegum undirboðum, brotastarfsemi og mansali sem er ógn við heilbrigðan vinnumarkað. Miklu máli skiptir að litið sé til allra þessara þátta þegar skapa á gott vinnuumhverfi sem hæfir öllum og eykur velsæld.

Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar fjalla um þessar áskoranir frá mismunandi sjónarhornum:

  • breytingar á vinnumarkaði sem geta haft áhrif á vinnuumhverfi framtíðarinnar og starfsaðstæður
  • hvernig hægt er að skapa góða vinnustaði sem stuðla að heilsu, öryggi og réttindum starfsfólks
  • skipulegt samstarf þvert á landamæri og innanlands til þess að uppræta félagsleg undirboð og brotastarfsemi

Fyrirlesarar eru norrænir sérfræðingar í vinnuumhverfis-/vinnumarkaðsmálum og opinberum innkaupum sem og innlendir fyrirlesarar frá fyrirtækjum og stofnunum. Í lok
ráðstefnunnar verður pallborð með þátttöku félagsmálaráðherra, aðila vinnumarkaðarins og annarra sérfræðinga.

Markhópar ráðstefnunnar eru:

  • Samtök atvinnurekenda og launafólks
  • Fyrirtæki og stofnanir
  • Forsvarsmenn opinberra innkaupa
  • Stjórnmálamenn
  • Sérfræðingar í vinnuvernd
  • Eftirlitsaðilar á vinnumarkaði
  • Aðrir sem hafa áhuga á viðfangsefni ráðstefnunnar

Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru félagsmálaráðuneytið, Vinnueftirlitið og Vinnumálastofnun í samstarfi við norrænu fræðslustofnunina NIVA. Ráðstefnan fer fram á ensku. Dagskrá er að finna á heimasíðu NIVA.

Þátttaka er án endurgjalds en skráning er nauðsynleg. Skráning fer fram hjá NIVA. 

Frestur til skráningar er 31. október.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum