Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2019 Utanríkisráðuneytið

Alþjóðlegur jafnlaunadagur að frumkvæði Íslands

Helen Inga Von Ernst er fulltrúi Íslands í mannréttindanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna - mynd

Ályktun um alþjóðlegan jafnlaunadag, sem Ísland var í forystu fyrir, var í dag samþykkt einróma í mannréttindanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Auk Íslands stóðu sjö ríki að ályktuninni, Ástralía, Kanada, Nýja Sjáland, Panama, Suður-Afríka, Sviss og Þýskaland. Um hundrað ríki til viðbótar voru meðflytjendur að ályktuninni sem sýnir mjög breiðan stuðning við málefnið.

„Íslensk stjórnvöld hafa beitt sér fyrir jafnlaunastefnu á alþjóðavettvangi í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar. Það er stór áfangi að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna ákveði að vekja athygli á mikilvægi launajafnréttis með þessum hætti,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherrar. „Alþjóðadagar sem þessir hafa reynst vel til þess að vekja athygli almennings og stjórnvalda á mikilvægum málefnum og við vonumst auðvitað til þess að svo verði einnig með þennan dag.“

Um er að ræða nýja ályktun, en öll ríkin sem stóðu að ályktunni eru einnig hluti af alþjóðlegum samtökum ríkja um að tryggja jöfn laun (e. Equal Pay International Coalition). Ályktunin tilgreinir 18. september sem alþjóðlegan jafnlaunadag sem haldinn verður árlega. Markmið alþjóðadagsins verður að vekja athygli á aðgerðum sem ráðist hefur verið í og stuðla að jöfnum launum, og hvetja til frekari aðgerða til að ná markmiði um jöfn laun kvenna og karla fyrir jafna vinnu sem áttunda Heimsmarkmið SÞ tekur sérstaklega til. 

Ályktunin rekur upphaf sitt til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf sem, fyrir tilstilli Íslands og fleiri ríkja, samþykkti í júlí sl. einróma ályktun um jöfn laun til handa konum og körlum.

Ræða Helenar Ingu Von Ernst, sendiráðsritara.

  • Alþjóðlegur jafnlaunadagur að frumkvæði Íslands - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum