Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Öll sveitarfélög á Íslandi verði barnvæn

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mun kynna frumvarpið á opnum fundi hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun mánudaginn 2. mars klukkan 11.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, undirrituðu í dag tímamótasamstarfssamning fyrir réttindi barna á Íslandi.

Um er að ræða samning um þátttöku félagsmálaráðuneytisins í verkefninu Barnvæn sveitarfélög UNICEF, undir formerkjunum Barnvænt Ísland, með það að markmiði að tryggja aðgengi allra sveitarfélaga að stuðningi við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þannig er ætlunin að stuðla að því að íslensk stjórnvöld og öll sveitarfélög á Íslandi hafi á næsta áratug hafið markvissa innleiðingu Barnasáttmálans og tileinkað sér barnaréttindanálgun í sínum verkefnum, stefnumótun og ákvörðunum. Þar með skipar Ísland sér í fremstu röð þeirra ríkja sem hvað best standa vörð um réttindi barna. Samningurinn er undirritaður í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember næstkomandi.

Með samningnum er stigið mikilvægt skref í átt að fjölgun sveitarfélaga sem taka þátt í verkefninu með það að markmiði að þeim fjölgi um sex árið 2020 og tólf árið 2021. Akureyri og Kópavogur eru fyrstu sveitarfélögin sem hafa hafið innleiðingu Barnasáttmálans með þátttöku í verkefninu og Hafnarfjörður hefst handa á næstu vikum. Samanlagt er stefnt á að a.m.k. 30 prósent sveitarfélaga á Íslandi hafi fengið viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög UNICEF við árslok 2021. 

Samhliða því að bjóða sveitarfélögum á Íslandi að taka þátt í verkefninu verður öllum sveitarfélögum á landinu boðið að nýta sér svokallað mælaborð um velferð barna innan sveitarfélagsins. Verður það gert í samvinnu við Kópavogsbæ sem leitt hefur þróunarverkefni þess efnis í samstarfi við félagsmálaráðuneytið og UNICEF á Íslandi. Sveitarfélög munu þannig geta greint með markvissum hætti þau tölfræðigögn sem til eru um velferð barna innan sveitarfélagsins og nýtt við stefnumótun, fjárhagsáætlanagerð og ákvarðanatöku með það að markmiði að tryggja aukið jafnræði og stuðla að því að allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn séu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu, í samræmi við 3. grein Barnasáttmálans. 

Hjördís Eva Þórðardóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri Barnvæns Íslands og mun hún hefja störf í félagsmálaráðuneytinu 20. nóvember næstkomandi samhliða starfi sínu hjá UNICEF á Íslandi. Hjördís er sérfræðingur í innleiðingu Barnasáttmálans, en hún lagði stund á MA nám í þeim fræðum við Háskólann í Stokkhólmi ásamt því að hafa BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur leitt innanlandsstarf UNICEF á Íslandi síðustu ár og stýrt þróun innleiðingarverkefna samtakanna hér á landi. Hjördís hefur áralanga reynslu á þessu sviði, en hún hefur einnig starfað fyrir umboðsmann barna á Íslandi og komið að stefnumótun UNICEF á alþjóðavísu. Hún mun í störfum sínum fyrir ráðuneytið eiga samvinnu við helstu hagsmunaaðila, þar á meðal börn og ungmenni.

Mikilvæg skref í þágu réttinda barna

„Með barnasáttmálanum höfum við komið á afar mikilvægum alþjóðlega viðurkenndum ramma um rétt barna og skuldbindum okkur til að standa vörð um þau réttindi. Til að tryggja raunverulega barnvænt samfélag þurfa börn þó að njóta þeirra réttinda sem sáttmálinn kveður á um í sínu nærumhverfi á degi hverjum. Á það við á heimilum, í skólum og hvar sem þau dvelja. Ég hef skynjað mikinn áhuga sveitarfélaga á að rækja þetta hlutverk sitt og er mér mikil ánægja að geta í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmálans tryggt stuðning við þá góðu vinnu sem þar fer fram. Samhliða er unnið að breytingum hjá Stjórnarráðinu með það að markmiði að í náinni framtíð verði Ísland allt barnvænt,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra við undirritunina.

Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, er afar ánægður með samstarfið og þau mikilvægu skref í þágu réttinda barna á Íslandi sem það felur í sér.

„Sveitarfélög eru sú stjórnsýslueining sem hefur mest, bein áhrif á réttindi og velferð barna á Íslandi. Það er einstakt að stjórnvöld ríkis styðji jafndyggilega við innleiðingu Barnasáttmálans og þessi samningur ber með sér. Með honum skipar Ísland sér í fremstu röð þjóða í þeim efnum og er því einstaklega gleðilegt að ganga til samstarfs við ráðuneytið og sífellt fleiri sveitarfélög á 30 ára afmæli Barnasáttmálans. Aukin áhersla á réttindi barna í sveitarfélögum getur stuðlað að jákvæðri byltingu fyrir börn hér á landi og aukið nýsköpun í þjónustuveitingu sveitarfélaga fyrir börn. Við erum viss um að það efli einnig samtal á milli kynslóða, samtal sem byggir á gagnkvæmri virðingu.“

Hvað eru barnvæn sveitarfélög?

Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður við markvissa innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities, sem hefur verið innleitt í hundruðum sveitarfélaga út um allan heim frá 1996.  Þótt ríkisvaldið beri formlega ábyrgð á að uppfylla Barnasáttmálann verður sáttmálinn aldrei að fullu innleiddur inn í íslenskt samfélag, nema í samstarfi við íslensk sveitarfélög enda eru það sveitarfélögin sem annast stærstan hluta þeirrar þjónustu sem hefur bein áhrif á daglegt líf barna.

Nánar um barnvæn sveitarfélög á vefnum barnvaensveitarfelog.is.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum