Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2019

Sýning í Brussel helguð starfi Uppbyggingarsjóðs EES

Gunnar Pálsson, sendiherra. - mynd

Opnuð var í vikunni sérstök sýning helguð EES Uppbyggingarsjóðnum í húsakynnum utanríkisþjónustu ESB (EEAS). Samanstendur sýningin af veggspjöldum sem gefa eiga mynd af hinu margbreytilega starfi sjóðsins í hinum fimmtán samstarfsríkjum hans innan ESB.  Sýningarspjöldin, sem flest gefa mynd að einstökum verkefnum í samstarfsríkjunum, höfðu áður verið sett upp á torgi við Ráðhúsið í Osló og farið þaðan milli borga í Noregi.

Við athöfnina, sem um 80 manns sóttu, fluttu sendiherrar EES EFTA-ríkjanna, Íslands, Liechtensteins og Noregs, ávörp, auk Christian Leffler, staðgengils framkvæmdastjóra efnahags- og alþjóðamála hjá EEAS.  Einnig var fulltrúum ungmennasamtaka frá Slóvakíu, sem viðstaddir voru, boðið að segja nokkur orð.

Stefnt er að því að sýningin verði í kjölfarið sett upp á fleiri stöðum í Brussel.

Ávarp Gunnars Pálssonar sendiherra Íslands má lesa hér.

  • Christian Lefflers, staðgengils framkvæmdastjóra efnahags- og alþjóðamála hjá EEAS. - mynd
  • Sýning í Brussel helguð starfi Uppbyggingarsjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 2
  • Sýning í Brussel helguð starfi Uppbyggingarsjóðs EES - mynd úr myndasafni númer 3

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum