Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Brotið í blað í geðheilbrigðisþjónustu við fanga

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kynna nýtt skipulag á geðheilbrigðisþjónustu við fanga - myndHeilbrigðisráðuneyti - /ME

Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) hefur verið falið að sinna geðheilbrigðisþjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins. Stofnað verður sérhæft, þverfaglegt geðheilsuteymi fanga (GHTF) í þessu skyni sem mun starfa með og styðja við starfsemi heilsugæslunnar í fangelsum. Teymið verður hreyfanlegt og mun einnig nýta tæknilausnir á sviði fjarheilbrigðisþjónustu til að sinna þjónustunni. Samningur þessa efnis milli Sjúkratrygginga Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var undirritaður í fangelsinu á Hólmsheiði í dag. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kynntu við þetta tækifæri hvernig unnið hefur verið að því að móta nýtt skipulag þessarar þjónustu og hvað í því felst.

Með auknum fjármunum og því skipulagi sem hér hefur verið ákveðið munum við færa geðheilbrigðisþjónustu í íslenskum fangelsum til þess sem best þekkist. Þessi niðurstaða er afrakstur metnaðarfullrar samvinnu heilbrigðis- og dómsmálaráðuneyta undanfarna mánuði þar sem kapp hefur verið lagt á að koma þessari þjónustu í horf sem er ekki aðeins viðunandi, heldur þannig að við getum verið stolt af,“ segir Svandís Svavarsdóttir.

Fangelsið á Hólmsheiði

Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar segir að stofnun geðheilsuteymisins muni hafa mikla þýðingu fyrir fangelsiskerfið og tryggja lögbundna þjónustu á þessu sviði:  „Ég fagna því og þá sérstaklega að ráðuneytin sem um málaflokkinn fjalla séu farin að vinna saman að því að ná árangri á sviðinu.  Dómsmála-, heilbrigðismála-, félagsmála- og menntamálaráðherra geta með samstilltu átaki gert það sem upp á vantar til að gera íslenskt fangelsiskerfi eitt það besta í heimi.“ 

Framlög til heilbrigðisþjónustu við fanga voru aukin umtalsvert á þessu ári. Alls voru 55 milljónir króna sérstaklega ætlaðar í geðheilbrigðisþjónustu og nú hefur ráðherra ákveðið að auka fjárveitinguna í 70 milljónir króna á næsta ári.

Samræmist ábendingum „pyntingarnefndar“ Evrópuráðsins

Síðastliðið vor gerði úttekt í fangelsum hér á landi nefnd Evrópuráðsins (CPT-nefndin) um varnir gegn pyntingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Bráðabirgðaniðurstöður nefndarinnar bárust ráðuneytum dóms- og heilbrigðismála í sumar og komu þar m.a. fram athugasemdir varðandi fyrirkomulag geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Meðal þess sem nefndin leggur áherslu á er að geðheilbrigðisþjónusta innan fangelsa eigi að vera sambærileg þeirri þjónustu sem aðrir landsmenn njóta eftir því sem mögulegt er, að teknu tilliti til sérþarfa fanga.

Á grundvelli ábendinga CPT-nefndarinnar og að undangengnu samráði og samvinnu við dómsmálaráðuneytið ákvað heilbrigðisráðherra að falla frá fyrri áformum um samningsgerð af hálfu SÍ um geðheilbrigðisþjónustu við fanga. Fyrirliggjandi samningsmarkmið voru tekin til ýtarlegrar endurskoðunar og ákveðið að byggja þjónustuna upp á sömu forsendum og gert hefur verið með stofnun geðheilsuteyma á vegum heilsugæslu og heilbrigðisstofnana um land allt.

Ákvörðun um að byggja geðheilbrigðisþjónustuna upp í sérstöku geðheilsuteymi fanga (GHTF) sem hluta af opinbera heilbrigðiskerfinu og á vettvangi heilsugæslunnar samræmist ábendingum CPT-nefndarinnar. Ákvörðunin er jafnframt mikilvægur liður í því að tryggja föngum einstaklingsmiðaða, samfellda og samhæfða þjónustu með formlegum og skilvirkum boðleiðum milli þjónustustiga eftir því hvort um er að ræða fyrsta, annars, eða þriðja stigs heilbrigðisþjónustu, líkt og nánar er skilgreint í heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Áhersla á eftirfylgni og stuðning eftir að afplánun lýkur

Geðheilsuteymi fanga verður mannað með geðlæknum, sálfræðingum og hjúkrunarfræðingum og öðrum fagstéttum á þessu sviði eftir því sem þörf krefur. Aðalbækistöð teymisins verður hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en það verður hreyfanlegt og mun einnig nýta tæknilausnir á sviði fjarheilbrigðisþjónustu til að veita föngum þjónustu í öllum fangelsum landsins. Áhersla verður lögð á samstarf við aðra þjónustuveitendur og að tryggja viðeigandi eftirfylgni og stuðning félags- og heilbrigðisþjónustu eftir að afplánun lýkur.

  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar og Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins kynna nýtt skipulag á geðheilbrigðisþjónustu við fanga - mynd
  • Frá kynningu - mynd
  • Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins - mynd
  • Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Páll Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar ásamt fangaverði - mynd
  • Fangelsið á Hólmsheiði - mynd
  • Halldór og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - mynd
  • Frá undirritun - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum