Hoppa yfir valmynd
12. desember 2019 Forsætisráðuneytið

Sérstakur fundur þjóðaröryggisráðs um stöðu mála í framhaldi af ofsaveðri

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Í dag var haldinn sérstakur fundur þjóðaröryggisráðs vegna hinna fordæmalausu aðstæðna sem upp hafa komið í framhaldi af ofsaveðri undanfarna daga.

Gestir fundarins voru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðmála, -iðnaðar og nýsköpunarráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ásamt ráðuneytisstjórum.

Þá var fulltrúum almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra boðið til fundarins ásamt fulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Rauða kross Íslands og gerðu þeir grein fyrir stöðu mála, hver á sínu sviði, og samvinnu fjölmargra aðila um land allt.

Á fundinum var farið yfir afleiðingar veðursins, stöðu mála og næstu skref. Ljóst er að miklar truflanir og bilanir hafa valdið rafmagnsleysi víða á Norðurlandi. Fjarskipti liggja niðri víða á sama svæði. Um fordæmalaust ástand er að ræða að þessu leyti og því þótti ráðlegt að boða þjóðaröryggisráð saman og fara yfir stöðuna sbr. 2. mgr. 6.gr. laga um þjóðaröryggisráð. Þess er vænst að viðgerðir á flutningskerfi muni taka nokkra daga.

Staða mála verður rædd enn frekar á vettvangi ríkisstjórnarinnar á morgun þar sem fjallað verður um nauðsynlegar aðgerðir til skemmri og lengri tíma litið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum