Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tæplega 40% hjónabanda á Íslandi lýkur með skilnaði; Félags- og barnamálaráðherra hefur tilraunaverkefni í þágu foreldra og barna í kjölfar skilnaðar

Søren Sander hjá SES (Samarbejde efter Skilsmisse) og Ásmundur Einar við undirritunina í vikunni. - mynd
Samkvæmt nýlegum upplýsingum frá Hagstofu Íslands lýkur tæplega 40 prósent hjónabanda á Íslandi með lögskilnaði. Í mörgum tilfellum er um að ræða skilnað fólks sem á börn saman. Er þá ótalinn sá hópur fólks sem á börn og slítur sambúð. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skrifaði fyrr í vikunni undir samning við danska fyrirtækið SES (Samarbejde efter Skilsmisse) vegna tilraunaverkefnis um innleiðingu sérhæfðrar skilnaðarráðgjafar til foreldra á Íslandi.

Ásmundur Einar segir um afar mikilvægt verkefni að ræða. „Ætla má að börnin sem þetta snertir séu um það bil 1.100 – 1.200 á ári. Þegar litið er til þess að langtímaáhrif skilnaðar á líðan barna geta verið verulega íþyngjandi, liggur í augum upp að það borgar sig fyrir okkur sem samfélag að standa sem allra best að þessum málum. Hægt er að lágmarka áhrif skilnaðar á börn ef foreldrar fá aðstoð við að vinna úr tilfinningalegri togstreitu og ná að vinna saman í skilnaðarferlinu allt frá upphafi.“

Aukin áhersla á félagslega ráðgjöf

Verkefnið snýr annars vegar að aðgangi foreldra í skilnaðarferli að rafrænu námskeiði og hins vegar að viðtalsráðgjöf sérfræðings félagsþjónustu. Ásmundur Einar segir markmið verkefnisins vera að innleiða og þróa nýtt vinnulag með áherslu á félagslega ráðgjöf í skilnaðar-, forsjár- og umgengnismálum. Verkefnið er að danskri fyrirmynd en eftir nýlegar breytingar á dönskum skilnaðarlögum þurfa allir foreldrar, sem sækja um leyfi til að skilja að borði og sæng og eiga börn undir 18 ára aldri, að taka skyldunámskeið um áhrif skilnaða á börn. Samkvæmt rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið hefur sú framkvæmd þegar gefið mjög góða raun. Þessi aðferð hefur dregið úr streitu og þunglyndi meðal foreldra, dregið úr andúð þeirra í millum og fækkað veikindadögum nýfráskilinna foreldra á ársgrundvelli. Þá hefur námskeiðið ýtt undir góða foreldrasamvinnu. Af þessu, og fleiru, má leiða að námskeiðin komi börnum foreldranna til góða bæði í lengd og bráð.

Ásmundur Einar átti góðan og upplýsandi fund með félagsmála- og innanríkisráðherra Danmerkur, Astrid Krag, um reynslu Dana af verkefninu en einnig almennt um málefni barna og mikilvæga samvinnu Norðurlandanna á þeim vettvangi. „Það er virkilega ánægjulegt að finna vilja og áhuga stjórnvalda í Danmörku til þess að gera enn betur í málefnum barna. Þar er verið að leggja áherslu á að vinna að uppbyggingu kerfis sem tekur mið af hagsmunum barna og setur réttindi þeirra í forgrunn,“ segir Ásmundur Einar.

Markmiðið að fækka ágreiningsmálum og bæta líðan barna

Með innleiðingu skilnaðarráðgjafar í félagsþjónustu er, að svo stöddu, ekki verið að breyta svokölluðu sáttarferli sem farið hefur fram hjá sýslumönnum þegar ágreiningur er um umgengni eða forsjá. Samkvæmt upplýsingum frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefur hins vegar skapast mikið álag og myndast töluverð bið eftir meðferð vissra skilnaðarmála sem getur haft alvarleg áhrif á líðan og velferð fjölskyldna og barna. Eitt af markmiðum verkefnisins er að grípa fyrr inn í mál með ráðgjöf og með því koma eins og hægt er í veg fyrir að ágreiningur komi upp. Þannig er áætlað að fækka megi þeim málum sem enda  í sáttarferli hjá sýslumönnum. 

„Hér á landi fara aðeins ágreiningsmál í sáttameðferð sem getur komið til seint í skilnaðarferlinu. Með markvissri ráðgjöf og þjónustu, strax í upphafi, viljum við reyna að fyrirbyggja að það komi upp ágreiningur síðar. Það ætti þá að leiða til þess að kerfið sem tekst á við ágreiningsmál hafi tök á því að taka þau til meðferðar skjótt og vel. Við vonumst til þess að efld þjónusta á fyrri stigum og  þessi nýja nálgun í skilnaðarmálum stuðli að því að vernda börn og styðja þau í skilnaðarferli foreldra,“ segir Ásmundur Einar. 

Lærdómsríkt barnaþing

Ásmundur Einar flutti einnig ávarp og tók þátt í Norræna barnaþinginu í Kaupmannahöfn í vikunni en þar komu saman 65 börn frá Danmörku, Finnlandi, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum og Álandseyjum sem vilja að Norðurlöndin verði barnvænsta svæði heims.  Þingið sóttu sex börn frá Íslandi sem koma frá svokölluðum Réttindaskólum UNICEF hér á landi. 

„Það hefur verið ótrúlega lærdómsríkt að hlusta og læra af börnunum sem tóku þátt í Norræna barnaþinginu. Íslensku börnin hafa komið skýrum skilaboðum á framfæri til mín sem og annarra íslenskra og alþjóðlegra ráðamanna, sem sýnir og sannar að þeirra raddir eru mikilvægar. Það sýnir einnig að þau eru gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Ég mun ekki láta mér nægja að hlusta heldur mun ég bregðast við,” segir Ásmundur Einar.

  • Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ásamt Astrid Krag, félagsmála- og innanríkisráðherra Danmerkur - mynd
  • Norrænt barnaþing í Kaupmannahöfn - mynd
  •  Salvör Nordal, umboðsmaður barna á Íslandi, og Ásmundur Einar Daðason ásamt íslenskum þátttakendum á Norræna barnaþinginu í Kaupmannahöfn. - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum