Hoppa yfir valmynd
30. janúar 2020 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kjarnastarfsemi efld með nýju skipuriti

Fagskrifstofur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu verða efldar en stoðskrifstofum fækkað samkvæmt nýju skipulagi sem kynnt var í ráðuneytinu í dag. Vinnulag og ferlar verða endurskoðaðir, gæða- og mannauðsmál fá aukið vægi sem og upplýsingamiðlun til almennings, stofnana og starfsfólks. Nýtt skipurit mun taka gildi 15. febrúar.

Á liðnu hausti var ráðist í úttekt á starfsemi, skilvirkni og skipulagi ráðuneytisins. Úttektin fólst meðal annars í umfangsmikilli rýni á ferlum, gögnum og skipuriti, ítarlegum viðtölum við starfsfólk, viðhorfsmælingum og vinnufundum með fulltrúum fjölmargra stofnana. Boðaðar breytingar á skipulagi byggja á þeirri vinnu, þar sem margir lögðu hönd á plóg.

Skrifstofa menningarmála og fjölmiðla verður að stærstum hluta óbreytt frá núverandi skipulagi. Skrifstofu mennta og vísindamála verður skipt í þrennt; 1) skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála, 2) skrifstofu framhaldsskóla og -fræðslu og 3) skrifstofu háskóla og vísinda.

Hver skrifstofa verður öflug og heildstæð eining, að mestu sjálfri sér nóg um afgreiðslu mála og mun því ekki þurfa stoðþjónustu í sama mæli og áður. Skrifstofa laga og stjórnsýslu verður lögð niður og starfandi lögfræðingar færast til fagskrifstofanna eftir sérsviðum. Málefni sem áður tilheyrðu skrifstofu yfirstjórnar færast til ráðuneytisstjóra og skrifstofu fjármála og rekstrar.

„Þessum breytingum er ætlað að bæta og hraða afgreiðslu mála, skerpa yfirsýn og styrkja ráðuneytið sem öflugan og samstíga vinnustað. Við viljum efla kjarnastarfsemi ráðuneytisins, dreifa verkefnum betur milli skrifstofa og starfsfólks og laga okkur að breyttum þörfum samfélagsins. Margvíslegar skyldur hvíla á ráðuneytinu, bæði gagnvart almenningi og okkar 53 stofnunum, og því er mikilvægt að ráðuneytið gangi eins og vel smurð vél,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. „Það mun taka tíma að ná settum markmiðum, en það er nauðsynlegt að hefja þess vegferð strax, til hagsbóta fyrir menningu, menntun og íþróttastarf í landinu.“

Skýrsla Capacent.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum