Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2020 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES í Osló

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Adrian Hasler, forsætisráðherra Liechtenstein og Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs. - mynd

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, og Adrian Hasler, forsætisráðherra Liechtenstein, á leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES, sem haldinn var í Osló í morgun. Á fundinum var rætt sérstaklega um samstarf EES EFTA-ríkjanna í samskiptum við Bretland á árinu en þar eiga ríkin marga sameiginlega hagsmuni. Þá var rætt um samstarf á sviði fjármálamarkaða innan EES-samningsins, aukið samstarf á sviði vinnumarkaðsmála og nauðsyn þess að taka hart á brotastarfsemi á vinnumarkaði og félagslegum undirboðum. Þá ræddu leiðtogarnir sérstaklega um aðgerðir gegn loftslagsvánni og samstarf EES EFTA-ríkjanna við ESB um sameiginleg markmið um losun gróðurhúsalofttegunda.

Á undan leiðtogafundi EFTA-ríkjanna í EES áttu Katrín Jakobsdóttir og Erna Solberg tvíhliða fund þar sem einnig var rætt um loftslagsmál og næstu áætlanir ríkjanna um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og stöðuna í samningum um fiskveiðar úr deilistofnum. Þá fór Katrín yfir þær aðgerðir sem Ísland hefur gripið til til að tryggja varnir gegn peningaþvætti í tengslum við FATF-samstarfið.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Það er mikilvægt að treysta stoðir EFTA-samstarfsins innan EES, ekki síst þegar við blasa krefjandi verkefni eins og samningsgerð við Bretland í kjölfar Brexit. Þar eiga EFTA-ríkin ýmsa sameiginlega hagsmuni og við munum hafa náið samstarf í tengslum við þessa samningagerð. Þá eru ýmsar aðrar áskoranir sem blasa við á hinu alþjóðlega sviði, eins og loftslagsváin, sem kalla á náið alþjóðlegt samstarf. Þar munu EFTA-ríkin eiga áfram gott samstarf við ESB, hér eftir sem hingað til.“

  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra á fundi leiðtoga EFTA-ríkjanna.  - mynd

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
12. Ábyrð neysla og framleiðsla

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum