Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Styrkjum úthlutað til fjölbreyttra umhverfisverkefna

Fríður hópur fólks hlaut verkefnastyrki í ár.  - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra hefur úthlutað 67,7 milljónum króna til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins. Alls var úthlutað styrkjum til 43 verkefna en að þessu sinni var áhersla lögð á verkefni sem lúta að loftslagsmálum og hringrásarhagkerfinu auk annarra verkefna á málefnasviði ráðuneytisins.

Guðmundur Ingi bauð handhöfum verkefnastyrkjanna til kaffispjalls í ráðuneytinu í dag í tilefni styrkveitinganna. Verkefnin eru af ýmsum toga og snúast m.a. um vistvænar samgöngur, plastmengun, fatasóun, fuglalíf, votlendi, landgræðslu og landbætur svo fátt eitt sé nefnt. Eins eru styrkt málþing og fundir um ólík umhverfismál, s.s. hálendisþjóðgarð, veiðikort og landupplýsingamál. Umhverfisfræðsla er einnig áberandi meðal verkefna og er hún sett fram í ólíku formi, s.s. á vefnum, í formi fyrirlestra, gefnar eru út bækur, myndbönd og sjónvarpsþættir auk námskeiða. Markhóparnir eru allt frá framhaldsskólanemum til eldri borgara. Þá fá ýmis félagasamtök á sviði umhverfismála ferðastyrki til að auðvelda þeim þátttöku í alþjóðlegu samstarfi.

„Það er frábært að geta stutt við bakið á einstaklingum og frjálsum félagasamtökum sem inna af hendi afar mikilvæg störf í þágu umhverfis og náttúruverndar. Í ár lögðum við sérstaka áherslu á að styrkja verkefni sem tengjast loftslagsmálum og hringrásarhagkerfinu, en það eru áherslumál hjá mér sem umhverfis- og auðlindaráðherra,“ segir Guðmundur Ingi.

Frá kaffispjalli ráðherra með styrkhöfum.

 

Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

Styrkhafi

Heiti verkefnis

Styrkveiting

Árafjöldi

Ásdís Ósk Jóelsdóttir

Neysla, nýting og nýsköpun

1.500.000

 

Blái herinn

Plasthreinasta landhelgi í heimi

2.000.000

 

Blái herinn

Ráðstefna Lets do it world í Tallinn Eistlandi 

100.000

 

Eldvötn

Afmælismálþing Eldvatna í tilefni 10 ára starfsafmælis

500.000

 

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs

Ævintýra- og náttúruferðir fjölskyldunnar

600.000

 

Ferðafélag Íslands

Umhverfismerkingar fyrir göngufólk

3.000.000

3 ár

Ferðaklúbburinn 4x4

Landbætur og aukið öryggi ferðamanna á hálendi Íslands

650.000

 

Fuglaverndarfélag Íslands

Fuglafriðland í Flóa

610.000

 

Fuglaverndarfélag Íslands

Fjáröflunarfundur BirdLife

150.000

 

Fuglaverndarfélag Íslands

Evrópufundur BirdLife

200.000

 

Garðyrkjufélag Íslands

Aukin þátttaka almennings í garðrækt, umhverfisvernd og endurvinnslu

1.500.000

 

Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs

LAND-NÁM; uppgræðsluverkefni GFF með skólaæskunni

6.000.000

3 ár

Grænni byggð

Grænni rekstur fjölbýlishúsa - kynningar fyrir húsfélög

500.000

 

Heimir Freyr Hlöðversson

"Fuglalíf" Heimildarmynd um Jóhann Óla Hilmarsson

1.500.000

 

Hið íslenska náttúrufræðifélag

Efni Náttúrufræðingsins gert aðgengilegt á vef

1.000.000

 

Hjólafærni á Íslandi

Hjóla- og gönguvika í sveitarfélagi; þróunarverkefni 2020

1.000.000

 

Hjólafærni á Íslandi

Bíllausi dagurinn sunnudaginn  20. september 2020

2.000.000

 

Kirkjubæjarstofa

Vörður - Fornar ferðaleiðir í Skaftárhreppi, 2. áfangi

1.000.000

 

Kvenfélagasamband Íslands

Norrænt þing Kvenfélagasambanda NKF

500.000

 

Kvenfélagasamband Íslands

Vitundarvakning um fatasóun

1.500.000

 

Landssamband eldri borgara

Umbúðalausir eldri borgarar - myndbönd um umhverfismál ætluð eldri borgurum

3.000.000

 

Landvernd

Loftslagsvernd í verki

12.000.000

3 ár

Landvernd

Náttúruvernd í Hálendisþjóðgarði - fundaröð

1.000.000

 

Landvernd

Ferð á heimsþing IUCN

450.000

 

Landvernd

Græðum Ísland -CARE - landgræðsluverkefni

2.000.000

 

Landvernd

Vistheimt með skólum

5.000.000

2 ár

LISA samtök

Erlent samstarf - þátttaka í fundum

250.000

 

LISA samtök

Upplýsingagátt um landupplýsingar, aðgengi að fræðsluefni um landupplýsingar

320.000

 

LISA samtök

Kynning á skipulagi og aðgerðum á sviði landupplýsinga á Norðurlöndum

500.000

 

Náttúruverndarsamtök Austurlands

Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur - afmælissýning

1.000.000

 

Náttúruverndarsamtök Íslands

Alþjóðl. samningur um verndun líffræðilegs fjölbreytileika sjávar - ferðastyrkur

300.000

 

Náttúruverndarsamtök Íslands

Ferð vegna 26. fundar aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna

450.000

 

Plastlaus september

Plastlaus september

4.000.000

 

Sigrún Helgadóttir

Flokkun og skráning ljósmynda Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings

4.500.000

2 ár

Sjónfilm ehf

Í ríki Vatnajökuls - 10 sjónvarpsþættir um jökla og loftslagsmál

2.000.000

 

Skotveiðifélag Íslands

Ráðstefna vegna 25 ára afmælis veiðikortakerfisins

750.000

 

Skotveiðifélag Íslands

Útfösun á plasti í forhlöðum haglaskota

500.000

 

Skógræktarfélag Akraness

Trjárækt og stígar í votlendi

400.000

 

Skógræktarfélag Borgarfjarðar

Loftslagsskógar

500.000

 

Skógræktarfélag Íslands

Opinn skógur í Álfholtsskógi

500.000

 

Skógræktarfélag Íslands

Fundur European Forest Network á Íslandi

800.000

 

Ungir umhverfissinnar

Framhaldsskólakynningar

650.000

 

Ungir umhverfissinnar

Loftslagsverkfall - Fridays for Future Ísland

1.000.000

 

Samtals

67.680.000

 

Tæpar 40 milljónir til reksturs félagasamtaka

Þá hefur ráðherra úthlutað styrkjum til reksturs félagasamtaka sem starfa á málasviði ráðuneytisins. Í ár námu styrkirnir 39 milljónum króna sem er aukning um tæplega helming frá fyrra ári.

Eftirtalin félagasamtök hlutu rekstrarstyrk á árinu 2020:

Styrkhafi

Styrkfjárhæð

Blái herinn

1.200.000

Eldvötn

790.000

Ferðaklúbburinn 4x4

430.000

Fuglaathugunarstöð Suðausturlands

400.000

Fuglaverndunarfélag Íslands

3.390.000

Garðyrkjufélag Íslands

1.330.000

Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs

1.030.000

Grænni byggð

300.000

Hið íslenska náttúrufræðifélag

1.200.000

Landssamtök hjólreiðamanna

500.000

Landvernd

10.260.000

LÍSA samtök

300.000

Náttúruverndarsamtök Austurlands

560.000

Náttúruverndarsamtök Íslands

5.630.000

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands

300.000

Rjúkandi

300.000

SAMÚT, samtök útivistarfélaga

1.020.000

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd

140.000

Skotveiðifélag Íslands

890.000

Skógræktarfélag Akraness

300.000

Skógræktarfélag Borgarfjarðar

430.000

Skógræktarfélag Íslands

7.500.000

SUNN - Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi

300.000

Ungir umhverfissinnar

500.000

Samtals  39.000.000

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum