Hoppa yfir valmynd
2. mars 2020 Utanríkisráðuneytið

Nýjar reglur um skipan sendiherra

Sendiráð Íslands í Osló. - mynd

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um utanríkisþjónustu hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Breytingarnar miða að því að koma á fastari skipan við val á sendiherrum til framtíðar með því að setja þak á fjölda sendiherra, afnema almenna undanþágu frá auglýsingaskyldu og lögfesta sérstakar hæfniskröfur. 

Í drögum að frumvarpi til breytinga á lögum um utanríkisþjónustu er:

  • sett þak á fjölda sendiherra,
  • auglýsingaskyldu komið á og sérstakar hæfniskröfur lögfestar,
  • takmörk sett á sérstakar sendiherraskipanir,
  • sveigjanleiki utanríkisþjónustunnar aukinn og tækifærum fyrir yngra fólk fjölgað.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að um sé að ræða grundvallarbreytingar sem bæti úr ágöllum á núverandi fyrirkomulagi. „Þessar breytingar tryggja nauðsynlegt jafnvægi milli festu og sveigjanleika innan utanríkisþjónustunnar, þar sem þekking og reynsla af alþjóðamálum myndar kjarnann án þess að við missum af tækifæri til að nýta jafnframt hæfileika og reynslu einstaklinga frá öðrum sviðum þjóðfélagsins,“ segir Guðlaugur Þór. Hann segir jafnframt að horft sé til jafnréttissjónarmiða og muni þessi breyting auka möguleika kvenna til að fá framgang innan utanríkisþjónustunnar.

Í frumvarpinu er lagt til að fjöldi sendiherra taki mið af fjölda sendiskrifstofa hverju sinni en hingað til hafa engin viðmið gilt um fjölda sendiherra. Guðlaugur Þór hefur ekki skipað nýjan sendiherra frá því að hann tók við embætti utanríkisráðherra hinn 11. janúar 2017. Leita þarf aftur til áranna 1961-1964 til að finna jafn langt tímabil þar sem enginn nýr sendiherra hefur verið skipaður. Þegar Guðlaugur Þór tók við embætti voru sendiherrar 40 talsins en þeir eru nú 36. Heildarfjöldi sendiskrifstofa er 25.

Þá mælir frumvarpið fyrir um skyldu til að auglýsa laus embætti sendiherra en embætti sendiherra eru nú almennt undanþegin auglýsingaskyldu. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að sérstakar hæfniskröfur gildi um sendiherrar og er það breyting frá núgildandi fyrirkomulagi.

Lagt er til í frumvarpinu að ráðherra verði áfram heimilt að leita út fyrir raðir fastra starfsmanna utanríkisþjónustunnar eftir sendiherrum sem hafa aflað sér sérþekkingar, reynslu og tengsla á öðrum vettvangi en þeim skipunum yrðu nú settar verulegar skorður. Hingað til hefur heimild ráðherra til að skipa sendiherra verið ótakmörkuð en í frumvarpinu verður skipunartími þeirra takmarkaður sem og heildarfjöldi þeirra sendiherra sem skipaðir eru með þessum hætti.

Þá er gert ráð fyrir auknum sveigjanleika utanríkisþjónustunnar með tækifærum fyrir yngra fólk í utanríkisþjónustunni, ekki síst konur, til að taka tímabundið við stjórnunarstöðum í utanríkisþjónustunni.

Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt stjórnarráðsins í morgun.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum