Hoppa yfir valmynd
6. mars 2020 Heilbrigðisráðuneytið

Þjónusta á heilsueflandi móttökum í heilsugæslu verði samræmd um allt land

Þjónusta á heilsueflandi móttökum í heilsugæslu verði samræmd um allt land - myndStjórnarráðið

Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu mun gegna mikilvægu hlutverki við innleiðingu á heilsueflandi móttökum í heilsugæslu á landsvísu. Ráðinn verður verkefnisstjóri í þessu skyni og hefur heilbrigðisráðherra veitt þróunarmiðstöðinni 15 milljónir króna til verkefnisins á þessu ári og því næsta.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í nóvember síðastliðnum ákvörðun um að ráðstafa 200 milljónum króna af fjárlögum þessa árs til að koma á fót heilsueflandi móttökum um allt land innan heilsugæslunnar. Móttökurnar verða ætlaðar eldra fólki og einstaklingum með fjölþætt eða langvinn heilsufarsvandamál. Markmiðið er að tryggja þessum hópi þverfaglega og heildstæða heilbrigðisþjónustu og innleiða skipulagða heilsuvernd fyrir aldraða.

Hlutverk verkefnisstjórans verður að efla og samræma vinnulag á heilsueflandi móttökum heilsugæslunnar um allt land. Heilsueflandi móttökur sem stuðla að bættri heilsu geta haft mikil áhrif á þjónustukeðju heilbrigðiskerfisins í heild. Væntur ávinningur af verkefninu eru m.a. aukin lífsgæði þeirra sem eiga í hlut og að draga megi úr eða seinka þörf hópsins fyrir annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum