Hoppa yfir valmynd
17. mars 2020 Dómsmálaráðuneytið

Fimm sóttu um Hæstarétt

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Þann 28. febrúar sl. auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar eitt embætti dómara við Hæstarétt Íslands og rann umsóknarfrestur út þann 16. mars 2020. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. 

Umsækjendur um embættið eru: 

1. Aðalsteinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt

2. Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Landsrétt

3. Jóhannes Sigurðsson, dómari við Landsrétt

4. Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari

5. Sigurður Tómas Magnússon, dómari við Landsrétt

Vegna skyldleika við umsækjandann Jóhannes Sigurðsson hefur dómsmálaráðherra ákveðið að víkja sæti við meðferð þessa máls. Hefur forsætisráðuneytið þegar verið upplýst um það og þess farið á leit að forsætisráðherra hlutist til um að öðrum ráðherra verði falin meðferð málsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum