Hoppa yfir valmynd
29. apríl 2020 Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Hakkaþon um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu

Almenningur og frumkvöðlar taka höndum saman um að finna nýjar lausnir á sviði heilbrigðisþjónustu til að gera heilbrigðiskerfinu betur kleift að fást við nýjar áskoranir vegna COVID-19. Dagana 22.-24.maí verður haldin nýsköpunarkeppni þar sem einstaklingum og frumkvöðlum gefst kostur á að keppa um bestu lausnirnar. Vefur keppninnar var formlega opnaður í dag hakkathon.island.is.

Mótið er haldið að erlendri fyrirmynd undir nafninu “Hack the Crisis Iceland“og er hluti af fjárfestingarátaki stjórnvaldavegna COVID-19 heimsfaraldursins en ríkisstjórnin hyggst verja 150 m.kr. í að stuðla að nýskapandi lausnum sem tengjast heilbrigðisþjónustu.Hakkaþonið er fyrsti fasi verkefnisins en fjárfestingarverkefnið verður kynnt í heild sinni á næstu vikum og byggjast aðgerðirnar á heilbrigðisstefnunýsköpunarstefnu og aðgerðaáætlun um opinbera nýsköpun.

Hvað er hakkaþon?

Hakkaþon er nýsköpunarkeppni þar sem þverfagleg teymi vinna saman í afmarkaðan tíma við að finna lausnir á raunverulegum áskorunum sem lagðar eru fram. Teymunum býðst einnig að fá ráðgjöf frá sérhæfðum leiðbeinendums em hjálpa þeim í gegnum ferlið. Þannig geta allir tekið þátt og krefst mótið engrar ákveðinnar þekkingar eða tækni.

Verkefninu er stýrt af RebootHack og Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samvinnu við Verkefnastofu um stafrænt Ísland, heilbrigðisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og fjármála og efnahagsráðuneyti.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum