Hoppa yfir valmynd
16. júní 2020 Dómsmálaráðuneytið

Arnfríður Einarsdóttir skipuð dómari við Landsrétt

Arnfríður Einarsdóttir dómari við Landsrétt - mynd

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Arnfríðar Einarsdóttur í embætti dómara við Landsrétt frá 1. júlí 2020. Arnfríður var skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjaness 1. febrúar 2006 og við Héraðsdóm Reykjavíkur 1. maí 2010 og gegndi því starfi allt þar til hún var skipuð dómari við Landsrétt frá 1. janúar 2018. Fyrr í þessum mánuði baðst Arnfríður lausnar frá þeirri skipun og hefur dómsmálaráðherra ákveðið að leggja til við forseta Íslands að sú beiðni verði samþykkt og henni veitt lausn frá 30. júní næstkomandi.

Við skipun Arnfríðar losnar embætti eins dómara í Landsrétti og verður það embætti auglýst laust til umsóknar innan tíðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum