Hoppa yfir valmynd
23. júní 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Tillögur um aðgerðir gegn matarsóun afhentar ráðherra

Starfshópur um aðgerðir gegn matarsóun ásamt Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra við afhendingu skýrslunnar. - mynd

Starfshópur um aðgerðir gegn matarsóun hefur skilað Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra tillögum sínum. Í skýrslu starfshópsins eru m.a. sett fram markmið um að draga úr matarsóun um 50% fyrir árið 2030. Skýrslan verður í almennri kynningu í samráðsgátt stjórnvalda til 31. júlí næstkomandi.

Alls eru tillögur starfshópsins 24 talsins, annars vegar 14 aðgerðir sem stjórnvöld bera ábyrgð á að komist til framkvæmdar og hins vegar 10 aðgerðir á ábyrgð atvinnulífsins. Starfshópurinn beinir sjónum sínum að öllum hliðum matarsóunar, en hún getur orðið hvenær sem er í ferlinu, allt frá ræktun til framleiðslu og neyslu. Þá snúa tillögurnar einnig að aukum matargjöfum. Auk tillagna um að sett verði markmið um að draga úr hvers kyns matarsóun um 50% fyrir árið 2030 er lagt til að segja markmið um 30% samdrátt fyrir árið 2025.

Í skýrslu starfshópsins er áhersla lögð á að til að ná árangri í að draga úr matarsóun þurfi samstillt átak samfélagsins alls, þ.e. atvinnulífsins, almennings og stjórnvalda. Lagt er til að stjórnvöld auki stuðning við nýsköpun, standi fyrir átaki í menntun og fræðslu um matarsóun, innleiði hagræna hvata til að sporna við matarsóun, endurskoði regluverk og standi fyrir árlegum mælingum á umfangi matarsóunar. Um leið setji atvinnulífið málefnið í forgang og taki frumkvæði að aðgerðum innan sinna vébanda, stuðli að upplýsingaskiptum, fræðslu og hvatningu.

Tillögur starfshóps um aðgerðir gegn matarsóun í samráðsgátt stjórnvalda




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum