Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum stýrir tilraunaverkefni um að efla og þróa samvinnu á velferð og högum barna

  - myndYadid Levy / Norden.org

Sýslumanninum í Vestmannaeyjum hefur verið falið að stýra tilraunaverkefni sem felur í sé að efla og þróa samvinnu sýslumanna, lögreglu, félagsþjónustu og barnaverndar í málum er lúta að velferð og högum barna, með áherslu á vernd barna sem búið hafa við ofbeldi á heimili. Verkefnið er ein af sjö megintillögum aðgerðateymis gegn ofbeldi sem skipað var í maí af Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Aðgerðateymið skipa Eygló Harðardóttir og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.

Arndís Soffía Sigurðardóttir, sýslumaður í Vestmannaeyjum,  stýrir verkefninu og Arndís Bára Ingimarsdóttir settur lögreglustjóri og Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi starfa með henni að verkefninu. Vinnunni er ætlað að bæta verklag og þjónustu gagnvart börnum sem hafa búið við ofbeldi á heimilum sínum. Covid-19 faraldurinn leggst þungt á samfélög og getur falið í sér alvarlega félagslega einangrun. Tölfræði ríkislögreglustjóra á landsvísu sýnir að heimilisofbeldismál jukust um 10% á meðan aðgerðir vegna faraldursins stóðu sem hæst og sömuleiðis fjölgaði tilkynningum til barnaverndar á landsvísu og fleiri börn en áður hringdu sjálf til að greina frá slæmum aðbúnaði sínum.

Liður í tilraunaverkefninu er að kalla fagfólk saman á ráðstefnu til Vestmannaeyja, hlýða á erindi og skapa umræður um það sem betur geti farið í verkferlum og samskiptum á milli umræddra stofna ríkis og sveitarfélaga í þágu barna. Ráðstefnan er fyrirhuguð dagana 3.-4. september n.k.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Eitt af þeim verkefnum sem ég setti í forgang þegar ég tók við sem ráðherra var að finna leiðir til þess að láta kerfin okkar tala betur saman og loka gráum svæðum þannig að barnið verði hjartað í kerfinu en ekki öfugt. Það er mjög spennandi að sjá þetta tilraunaverkefni fara af stað í Vestmannaeyjum en ég held að það sé engin betri fjárfesting í íslensku samfélagi en í velferð barnanna okkar.“

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra: „Málefni barna og fjölskyldna eru forgangsmál í mínum huga og í því skyni hækkaði ég fjárheimildir til sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í mars sl. með því skilyrði að fjármagninu yrði ráðstafað í að stytta biðtíma. Leit ég þar ekki síst til aukinnar skilvirkni og hraðari afgreiðslu á fjölskyldusviði sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Tilraunaverkefnið sem ýtt er úr vör nú, er frábært skref í að tryggja frekari samvinnu í fjölskyldumálum milli sýslumannsembætta en einnig við aðrar stofnanir er koma að málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi. Um er að ræða mikilvæga eflingu þjónustu við okkar viðkvæmasta hóp. Embættið í Vestmannaeyjum styrkist en um leið dreifist álag milli sýslumannsembætta. Það skilar sér í styttri biðtíma og betri þjónustu við börn og borgara alla.”

Arndís Soffía Sigurðardóttir, sýslumaður í Vestmannaeyjum: „Vestmanneyjar eru tilvalin vettvangur fyrir tilraunaverkefni sem þetta þar sem boðleiðir eru stuttar og aðeins eitt sveitarfélag í lögsagnarumdæmi lögreglu og sýslumanns. Við höfum þegar hafið störf og fundum reglulega í Vestmannaeyjum.“           

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum