Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2020 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra fundar með ráðherra bandaríska flughersins

Öryggis- og varnarmál á norðurslóðum voru helsta umræðuefnið á fjarfundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Barböru M. Barrett, ráðherra bandaríska flughersins í morgun. 

Barrett var stödd hér á landi í stuttri heimsókn og dvaldi hún á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli á meðan henni stóð. Kynnti hún sér meðal annars starfsemi Landhelgisgæslunnar á svæðinu.

Þau Guðlaugur Þór funduðu með fjarfundarbúnaði í morgun en utanríkisráðherra viðhefur nú smitgát vegna Covid-19. Á fundinum voru helst til umræðu öryggis- og varnarmál á norðurslóðum, þar með talið ný norðurslóðastefna bandaríska flughersins. Auk þess ræddu ráðherrarnir öryggis og varnarsamstarf ríkjanna, mikilvægi efnahagssamvinnu og þýðingu baráttunnar fyrir sameiginlegum gildum, mannréttindum og kynjajafnrétti. 

„Bandaríkin eru eitt af okkar nánustu samstarfs- og vinaríkjum og samvinna okkar hefur aukist á umliðnum árum, meðal annars á sviði öryggis- og varnarmála en líka á vettvangi Norðurskautsráðsins þar sem Ísland gegnir nú forystuhlutverki. Það var bæði ánægjulegt og gagnlegt að eiga samtal við bandaríska ráðherrann um þessi málefni og ég vænti mikils af áframhaldandi samstarfi á þeim sviðum sem öðrum í framtíðinni,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson eftir fund þeirra Barrett.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum