Hoppa yfir valmynd
18. september 2020 Forsætisráðuneytið

Frumvörp til nýrra jafnréttislaga kynnt í ríkisstjórn

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, lagði fram frumvörp til nýrra jafnréttislaga í ríkisstjórn í morgun.

Frumvörpin eru tvö, annars vegar frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og hins vegar frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála. Síðarnefnda frumvarpið lýtur að skipulagi á þeirri stjórnsýslu sem lögð er til að gildi á sviði jafnréttismála.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Ný jafnréttislög eru tímabær og þörf í ljósi þeirrar miklu þróunar sem orðið hefur í jafnréttismálum frá setningu jafnréttislaganna árið 2008. Jafnréttismálin hafa öðlast sífellt meira vægi bæði hér á landi og á heimsvísu og það er nauðsynlegt að við horfum stöðugt til þess sem betur má fara. Í þessum nýju lögum má sjá margar þarfar breytingar. Næsta skref er að þingið taki frumvörpin til meðferðar og ég hlakka til að fylgjast með þeirri vinnu.“

Markmið fyrrnefnda frumvarpsins er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Tillögurnar ná meðal annars til starfa Jafnréttisstofu og kærunefndar jafnréttismála. Markmið þess frumvarps er að efla stjórnsýslu jafnréttismála og að jöfn meðferð í víðum skilningi njóti betri verndar.

Í fyrsta skiptið í íslenskum rétti er kveðið á um bann við fjölþættri mismunun, þ.e. þegar manneskju er mismunað á grundvelli fleiri en einnar mismununarástæðu sem verndaðar eru í löggjöf um jafnréttismál. Slíkt ákvæði  veitir meðal annarra fötluðum konum og konum af erlendum uppruna aukna vernd.

Þá er í fyrsta skiptið í heild sinni gert ráð fyrir þremur hópum fólks með mismunandi kynskráningu, þ.e. konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá.  Af þeirri ástæðu er lagt til að heiti laganna verði lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og er þetta í fyrsta sinn síðan 1976 sem lagt er til nýtt heiti á lögunum.

Í frumvörpunum er skerpt á ákvæðum um jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu og gerð grein fyrir hlutverki Jafnréttisstofu við framkvæmd löggjafar um jafnréttismál með skýrari hætti en áður. Jafnframt eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem varða kærunefnd jafnréttismála þar sem meðal annars verði aukið við kröfur um sérþekkingu innan kærunefndarinnar á jafnréttismálum.

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum