Hoppa yfir valmynd
18. september 2020 Forsætisráðuneytið

Henný Hinz ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnar

Henný Hinz hagfræðingur hefur verið ráðin sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar með aðsetur í forsætisráðuneytinu. Henný mun m.a. starfa að vinnumarkaðsmálum, þ.m.t. gerð grænbókar um vinnumarkaðsmál, auk þess að koma að stefnumótun um hagræn viðbrögð vegna loftslagsvárinnar, fjórðu iðnbyltinguna og öðrum efnahagslegum viðfangsefnum.

Henný er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Alþýðusambandi Íslands frá árinu 2004 og sem deildarstjóri hagdeildar sambandsins frá árinu 2016. Henný hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum og stefnumótun, m.a. á sviði efnahags- og kjaramála, velferðarmála, lífeyrismála, húsnæðismála og verðlags- og neytendamála auk þess að taka þátt í norrænu og alþjóðlegu samstarfi á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar.

Henný er gift Kristjáni Geir Péturssyni lögfræðingi og þau eiga sex börn á aldrinum tveggja til 23 ára. 

Henný hefur störf þann 5. október nk.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum