Hoppa yfir valmynd
25. september 2020 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Sætaskylda innleidd á öllum vínveitingastöðum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndStjórnarráðið

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis sem felur í sér að öllum vínveitingastöðum verði skylt að hafa sæti fyrir alla gesti sína og tryggja að gestir séu að jafnaði í sætum eins og almennt tíðkast á veitingahúsum og kaffihúsum. Reglugerð þessa efnis tekur gildi mánudaginn 28. september. Frá sama tíma er aflétt tímabundinni lokun kráa og skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu en með fyrrnefndu skilyrði um sætaskyldu. Í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis verða aðrar samkomutakmarknir framlengdar óbreyttar í þrjár vikur til og með 18. október næstkomandi.

Tilmæli um loftgæði og að hávaða sé stillt í hóf

Í meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra eru tíundaðar helstu reglur sem gilda um sóttvarnir í margvíslegri starfsemi og sjónarmiðin að baki, ásamt tilmælum sóttvarnalæknis. Þar koma meðal annars fram tilmæli sóttvarnalæknis um að rekstraraðilar skemmtistaða, vínveitingastaða, kráa og spilasala skuli tryggja góð loftgæði og stilla hávaða í hóf. Er þá vísað til þess að hávær tónlist ýti undir að fólk tali hátt sem auki hættu á dropasmiti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum