Hoppa yfir valmynd
29. september 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Netöryggi okkar allra - skráning

Netöryggi okkar allra er yfirskrift fundar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins föstudaginn 2. október kl. 13-15 í tilefni af evrópska netöryggismánuðinum í október. Fundurinn verður í beinni vefútsendingu á vef Stjórnarráðsins. Öllum er velkomið að fylgjast með fundinum en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku.

Evrópski netöryggismánuðurinnAð loknu ávarpi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verður fjallað um uppbyggingu og eflingu Netöryggissveitarinnar ásamt samræmandi hlutverki hennar í samræmi við ný lög um net- og upplýsingaöryggi sem tóku gildi 1. september sl. Sérstakur gestur fundarins er Sir Rob Wainwright, meðeigandi Deloitte í Evrópu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Europol, en hann mun fjalla um fjölbreyttar ógnir af völdum skipulagðrar glæpastarfsemi á Netinu. Loks verða pallborðsumræður með sérfræðingum af ýmsum sviðum samfélagsins á sviði netöryggis og upplýsingatækni. Fjallað verður um ýmsar hliðar netöryggismála hérlendis og tækifæri til framfara.

Dagskrá:

  • 13:00    Ávarp 
    Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

  • 13:15    Efling netöryggissveitarinnar
    Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar

  • 13:30    Trust in a hyper connected digitalized society
    Sir Rob Wainwright, meðeigandi Deloitte í Evrópu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Europol

  • 14:00    Pallborðsumræður með þátttöku Sir Rob Wainwright, Hrafnkels og eftirtalinna:
    Daði Gunnarsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
    Guðrún Valdís Jónsdóttir, öryggisráðgjafi hjá Syndis
    Sigyn Jónsdóttir, forstöðumaður sérfræðiþjónustu hjá Men and Mice og stjórnarkona í Tækniþróunarsjóði
    Vilhelm Gauti Bergsveinsson, yfirmaður netöryggisþjónustu Deloitte á Íslandi

 

  • Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum