Hoppa yfir valmynd
2. október 2020 Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Opinbert hlutafélag stofnað um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu

Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa gengið frá stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangur félagsins, sem ber heitið Betri samgöngur ohf., er að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem fól í sér sameiginlega framtíðarsýn og fjárfestingar í samgönguframkvæmdum til fimmtán ára.

Stofnsamningurinn var undirritaður af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ásamt borgar- og bæjarstjórum sveitarfélaganna sex og framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í Hörpu í dag. Hluthafasamkomulag og samþykktir félagsins hafa verið samþykktar í sveitarstjórnum allra hlutaðeigandi sveitarfélaga.

Alþingi samþykkti í sumar lög um sem heimiluðu stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu og þingið samþykkti sömuleiðis samgöngusáttmálann, sem er hluti af samgönguáætlun fyrir tímabilið 2020-2034.

Nýja félagið mun hafa yfirumsjón með framkvæmdum vegna uppbyggingar samgangna og fjármögnun þeirra. Ríkið mun eiga stærstan hlut í félaginu, eða 75%, en sveitarfélögin sex ráða yfir 25% hlut sem skiptist eftir stærð þeirra. Félaginu er ekki ætlað að skila arði og er hluthöfum óheimilt að taka arð út úr félaginu.

Félagið mun einnig, með sérstökum samningi, taka við landi ríkisins að Keldum eða öðru sambærilegu landi og þeim réttindum sem því tengjast og sjá um þróun þess í samvinnu við viðeigandi skipulagsyfirvöld með það að markmiði að hámarka virði landsins og uppbyggingu þess. Afkoma af þróun landsins verður nýtt til að fjármagna framkvæmdir og rekstur félagsins. 

„Samgöngusáttmálinn var stórt framfaraskref fyrir höfuðborgarsvæðið þar sem við nálgumst uppbyggingu á samgöngumannvirkjum með heildstæðum hætti. Stofnun félagsins í dag er næsta skrefið í þessu mikilvæga verkefni sem mun tryggja stórfellda uppbyggingu almenningssamgangna með Borgarlínuverkefninu, göngu- og hjólastíga og mikilvægar stofnframkvæmdir til að tryggja umferðaröryggi á höfuðborgarsvæðinu. Með þessu tryggjum við fjölbreyttari ferðamáta og ráðumst í uppbyggingu á réttum tíma til að auka efnahagsumsvif og fjölga störfum,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.

„Við núverandi efnahagsaðstæður er mikilvægt að viðhalda fjárfestingarstigi hins opinbera og stuðla að því að flýta framkvæmdum. Því er það fagnaðarefni að í höfn sé samningur um opinbert hlutafélag til að halda utan þá umfangsmiklu uppbyggingu sem fyrirhuguð er á höfuðborgarsvæðinu. Það er hlutverk félagsins að ráðast í arðbæra innviðauppbyggingu sem mun örva efnahagslífið og atvinnusköpun sem skiptir sköpum um þessar mundir,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.

„Í dag var stigið stórt skref að því að koma skriði á metnaðarfulla og langþráða uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Það er sérlega ánægjulegt vegna þess að síðustu ár og áratugi hefur ríkt mikið frost í samskiptum ríkis og sveitarfélaga í þessum efnum. Með samgöngusáttmálanum var höggvið á hnútinn og stofnun opinbers félags staðfestir samstöðu okkar og samvinnu síðustu mánuði,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

„Þetta eru afar ánægjuleg tímamót. Stofnun félagsins er mikilvægur liður í því að tryggja að sú fjölbreytta innviðauppbygging sem samgöngusáttmálinn gerir ráð fyrir verði að veruleika. Framundan er bylting í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem áhersla verður á fjölbreytta valkosti og öryggi og flæði á stofnvegum, í almenningssamgöngum og á hjóla- og göngustígum,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.

„Ég fagna þessum áfanga mjög. Stofnun félagsins á að tryggja að undirbúningur og framkvæmd samgöngusáttmálans verði markviss, hröð og góð. Félagið getur verið ómetanlegt í að höfuðborgarsvæðið þróist hraðar í græna átt með tilkomu Borgarlínu, heildstæðu kerfi hjólastíga og því að umferðarmiklar samgönguæðar fari í stokk,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.

Stjórn Betri samgangna skipa þau: Árni M. Mathiesen, formaður, Eyjólfur Árni Rafnsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Gunnar Einarsson, Ólöf Örvarsdóttir og Hildigunnur Hafsteinsdóttir. Varamenn eru Ármann Kr. Ólafsson og Guðrún Birna Finnsdóttir. 

Nánar um samgöngusáttmálann 

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins var undirritaður fyrir réttu ári síðan, þann 26. september 2019 en hann felur í sér sameiginlega framtíðarsýn og heildarhugsun fyrir skipulagssvæðið. Markmiðið er að auka öryggi, bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta og minnka tafir, stórefla almenningssamgöngur og draga úr mengun af völdum svifryks og losun gróðurhúsalofttegunda til að standa við loftslagsmarkmið stjórnvalda og sveitarfélaga. Heildarfjármögnun samgönguframkvæmda á svæðinu á tímabilinu samkvæmt sáttmálanum er 120 milljarðar króna.

Skömmu eftir undirritun sáttmálans lagði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra fram á Alþingi þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2020-2034. Í áætluninni eru  framlög til samgöngusáttmálans staðfest, ásamt þeim áherslum og markmiðum sem hann boðar. Samgönguáætlun var síðan samþykkt á Alþingi í júní 2020.

Samgöngusáttmálinn kvað ennfremur á um að samstarfið færi fram í gegnum opinbert félag. Fjármála- og efnahagsráðherra lagði fram frumvarp þess efnis á Alþingi á vorþingi og var það samþykkt í júní 2020.

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum