Hoppa yfir valmynd
4. desember 2020 Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Litakóðunarkerfi tekið upp vegna COVID-19

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.

Viðvörunarkerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn og lágmarka þannig heildarskaðann sem hann veldur í samfélaginu. Kerfið verður kynnt á næsta upplýsingafundi Almannavarna og Landlæknis á mánudag. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum