Hoppa yfir valmynd
9. desember 2020 Heilbrigðisráðuneytið

COVID-19: Tilslakanir vegna íþróttastarfs

Heimildir til að stunda íþróttastarf verða rýmri með nýrri reglugerð um takmarkanir á samkomum sem tekur gildi 10. desember. Sérstaklega er kveðið á um íþróttastarf á vegum Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) varðandi heimildir til æfinga meðal afreksfólks og í efstu deildum sambandsins eins og nánar greinir hér.

Íþróttastarf almennt


Öllum er heimilt að stunda æfingar utandyra sem krefjast ekki snertingar að því gættu að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun og að hámarki 10 manns saman.

Íþróttastarf á vegum ÍSÍ

Íþróttaæfingar einstaklinga sem fæddir eru árið 2004 eða fyrr verða heimilar, hvort heldur með eða án snertingar í íþróttum innan ÍSÍ í efstu deild kvenna og karla í hverju sérsambandi. Hámarksfjöldi í hverju rými er 25 manns.

Æfingar afreksmanna í einstaklingsbundnum íþróttum innan ÍSÍ eru heimilar og þar er einnig hámarksfjöldi í hverju rými 25 manns.

Sóttvarnir: Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag, loftræsting skal vera í lagi og loftað út reglulega yfir daginn.

Bardagalistir: Æfingar sem krefjast snertingar innan bardagaíþrótta eru óheimilar.

Undanþáguheimild: Í 8. gr. meðfylgjandi reglugerðar er kveðið á um heimild ráðherra til að veita undanþágu frá banni við íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, svo sem vegna alþjóðlegra keppnisleikjahér á landi eða æfinga í næstefstu deild sérsambands Íþrótta- og ólympíusambands Íslands ef deildin er skilgreind á sama afreksstigi og efsta deild, enda sé gætt fyllstu sóttvarna að öðru leyti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum