Hoppa yfir valmynd
10. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra á hátíðarfundi á alþjóðamannréttindadeginum

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, á hátíðarfundi í tilefni 75 ára afmælis Sameinuðu þjóðanna.  - mynd

Mannréttindi og 75 ára afmæli Sameinuðu þjóðanna voru til umfjöllunar á opnum fjarfundi sem haldinn var í tilefni af alþjóðamannréttindadeginum sem haldinn er hátíðlegur 10. desember ár hvert. Í ávarpi sem Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, hélt á fundinum lagði hann áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um hinar Sameinuðu þjóðir. COVID-19 heimsfaraldurinn hefði sýnt rækilega hve miklu máli skipti að ríki heims geti átt samstarf um brýn úrlausnarefni, svo sem fjármögnun og dreifingu á bóluefni, og hversu mikilvægt það er að gott alþjóðastofnanakerfi sé til staðar til byggja það samstarf á.

Ísland átti sæti í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um átján mánaða skeið 2018-2019 og hefur tilkynnt um framboð vegna setu í ráðinu heilt kjörtímabil 2025-2027. „Okkar reynsla sýnir að jafnvel smáríki geta haft jákvæð áhrif á þeim vettvangi, með því að tala skýrt og skorinort fyrir mannréttindum og virðingu fyrir þeim,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í ávarpi sínu í dag

Fundurinn í dag var haldinn á vegum utanríkisráðuneytisins, Höfða – friðarseturs og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Þátttakendur í pallborðsumræðum um þau tímamót sem Sameinuðu þjóðirnar standa nú á voru Richard Gowan frá hugveitunni International Crisis Group, Rita French, sendiherra mannréttindamála í bresku utanríkisþjónustunni, með aðsetur í Genf, Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, og Niels Nagelhus Schia, fræðimaður við norsku alþjóðamálastofnunina (NUPI), en Noregur mun um áramótin taka sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Umræðum stjórnaði Pia Hansson, framkvæmdastjóri Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.

Utanríkisráðherra harmaði í ávarpi sínu hve hart væri sótt að mannréttindum, lýðræði og fjölþjóðasamvinnu um þessar mundir. Afar brýnt væri að taka slaginn fyrir þessi gildi með þeim tækjum sem tiltæk væru. Einnig væri mikilvægt að tryggja að einræðisríki, eða ríki þar sem grundvallarmannréttindi eru ekki virt, næðu ekki undirtökunum í starfi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðstofnana.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum