Hoppa yfir valmynd
10. desember 2020 Heilbrigðisráðuneytið

​Stórfjölgun hjúkrunarrýma á næsta ári

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra - myndHeilbrigðisráðuneyti

Áformað er að auka framlög til hjúkrunarrýma um rúmlega 1,7 milljarða króna á fjárlögum næsta árs og verja stærstum hluta fjármagnsins til að fjölga hjúkrunarrýmum um allt að 90 á höfuðborgarsvæðinu strax á næsta ári. Heilbrigðisráðherra stefnir á að bjóða út húsnæði og rekstur nýrra rýma sem fyrst eftir áramót. Hluta fjármagnsins verður varið til að auka rekstrarframlög til hjúkrunarheimila í samræmi við auka hjúkrunarþyngd íbúa.

Önnur umræða um fjárlög næsta árs hófst á Alþingi í dag. Gert er ráð fyrir að framlög til hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu verði aukin um 1.715 milljónir króna. Af þeirri fjárhæð er ráðgert að 1.350 milljónum króna verið varið til fjölgunar hjúkrunarrýma. Aukningin er varanleg og er ætlað að standa undir umtalsverðri fjölgun hjúkrunarrýma strax á næsta ári.

„Getum lyft grettistaki“

Þörf fyrir fleiri hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu er brýn, en að óbreyttu miðað við þær framkvæmdir sem unnið er að, fjölgar þeim ekki að ráði fyrr en á árunum 2023 – 2025. „Með þessu viðbótarfjármagni getum við lyft grettistaki og fjölgað hjúkrunarrýmum varanlega þar sem þörfin er mest. Hér erum við ekki að tala um tímabundna lausn, heldur varanlega fjölgun hjúkrunarrýma þar sem vandað verður til verka og áhersla lögð á að uppfylla allar þær kröfur sem við gerum og viljum gera til húsnæðis og reksturs þjónustu við aldrað fólk sem getur ekki búið lengur heima“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Hún leggur einnig áherslu á að fleiri hjúkrunarrými mæti ekki einungis brýnni þörf aldraðra fyrir þjónustu, heldur sé þetta einnig fallið til að styrkja heilbrigðiskerfið og stuðla að því að sjúklingar fái rétta þjónustu á réttum stað í samræmi við markmið heilbrigðisstefnu.

Gert er ráð fyrir að Sjúkratryggingar Íslands geti auglýst eftir húsnæði og rekstraraðilum fyrir ný hjúkrunarrými í samræmi við lög um opinber innkaup fljótlega eftir áramót.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum