Hoppa yfir valmynd
14. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór undirritaði nýjan rammasamning við UN Women

Samningurinn gildir til loka árs 2023 og veitir heildræna umgjörð utan um samstarf Íslands og UN Women. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Ms. Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdarstjóri UN Women, skrifuðu í dag undir nýjan rammasamning um stuðning Íslands við UN Women. Samningurinn gildir til loka árs 2023 og veitir heildræna umgjörð utan um samstarf Íslands og stofnunarinnar og styður við jafnréttismál í þróunarsamvinnu. 

„Við vitum að ofbeldi gegn konum og stúlkum hefur aukist í kjölfar heimsfaraldursins. Ísland mun halda áfram að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi til dæmis með því að leggja áherslu á kjarnaframlög til UN Women, sem veita stofnuninni sveigjanleika til að bregðast við þar sem þörfin er mest hverju sinni,“ sagði Guðlaugur Þór við tilefnið, en samningurinn var undirritaður á fjarfundi.

UN Women er ein af áherslustofnunum Íslands í þróunarsamvinnu og sinnir verkefnum sem ætlað er að efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum, efnahagslegt sjálfstæði og uppræta ofbeldi gegn konum og stúlkum. Stofnunin starfar á vettvangi, sinnir samræmingarhlutverki meðal stofnana Sameinuðu þjóðanna og er leiðandi í stefnumótun á alþjóðavettvangi. Ísland hefur stutt stofnunina frá upphafi og er á meðal helstu stuðningsaðila. 

Á þessu ári hefur ofbeldi gegn konum og stúlkum aukist í kjölfar heimsfaraldursins og mikilvægt er að beina sjónum að þessari afar slæmu þróun sem á sér stað um heim allan. UN Women hefur jafnframt fjallað um þetta sem skuggafaraldurinn

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum