Hoppa yfir valmynd
16. desember 2020 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Matvælasjóður úthlutar í fyrsta sinn: 62 verkefni hljóta styrk

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs - myndGolli

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti fyrstu úthlutun Matvælasjóðs í morgun en alls hljóta 62 verkefni styrk að fjárhæð allt að 480 milljónir að þessu sinni. Alls bárust 266 umsóknir um styrki upp á 2,7 ma.kr. Hægt er að fylgjast með upptöku frá úthlutuninni hér, en hún var í beinu streymi. Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs kynnti úthlutunina og vinnu stjórnar og fagráða sjóðsins.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Þessar öflugu og fjölbreyttu umsóknir eru vitnisburður um þann gríðarlega kraft og grósku sem er í íslenskri matvælaframleiðslu. Matvælasjóður styrkir nú 62 verkefni vítt og breitt um landið. Það var enda ein af lykiláherslum mínum við stofnun sjóðsins að hann myndi styrkja verkefni um allt land og að stuðningur við matvælaframleiðslu verði sem næst uppruna hennar. Styrkir Matvælasjóðs eru um leið skýr skilaboð; stjórnvöld eru að fjárfesta í framtíðinni. Fjárfesta í aukinni verðmætasköpun. Við erum í krafti nýsköpunar og þróunar að hvetja til aukinnar verðmætasköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu til hagsbóta fyrir allt samfélagið.“

Fjölbreytt verkefni

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Sjóðurinn hefur fjóra styrktarflokka og verður fulltrúum 62 verkefna boðið að ganga til samninga um nýja styrki fyrir allt að 480 m. króna. Meðal verkefna sem hljóta styrk að þessu sinni eru verkefni um að skoða tækifæri til að fullvinna laxaafurðir á Íslandi, verkefni um framleiðslu á húð- og hárvörum úr hliðarafurðum úr landbúnaði, verkefni um ræktun hafra og framleiðsla á haframjólk, verkefni sem gengur út á að auka nýtingu á verðmætum efnum úr þörungum, verkefni um þróun á framleiðslukerfi í sauðfjárrækt, verkefni um framleiðslu á fiskisósum úr afskurði og aukaafurðum af próteinríkum fiski og matþörungum úr héraði, verkefni um framleiðsla á íslenskri jurtamjólk á sjálfbæran hátt og verkefni um framleiðslu á orkustykkjum og snakki úr fjallagrösum.

Gréta María Grétarsdóttir, formaður stjórnar Matvælasjóðs:

Við erum mjög ánægð með viðtökurnar sem sjóðurinn fékk og við getum verið bjartsýn hvað framtíð matvælavinnslu á Íslandi varðar þar sem einstök framtakssemi og hugmyndaauðgi einkenndi umsækjendur. Við fyrstu úthlutun og yfirferð umsókna kom ýmislegt í ljós sem við sjáum að hægt er að bæta úr sem gert verður fyrir næstu úthlutun. Við hvetjum alla sem fengu ekki styrk að þessu sinni til að vinna áfram í sínum hugmyndum enda stutt í næstu úthlutun sem fer fram í vor og stefnum við á að opna fyrir umsóknir í mars. Samhliða ætlum við að bjóða upp á rafrænt námskeið fyrir umsækjendur sem auglýst verður síðar. Einnig mun styrkþegum standa til boða að sækja rafræn námskeið sem munu vonandi auka líkur á að verkefnin náin tilsettum markmiðum.

Styrkir úr Báru, Afurð, Fjársjóði og Keldu

Fagráð sjóðsins eru fjögur og voru stjórn til ráðgjafar. Þau voru skipuð aðilum sem höfðu þekkingu á ýmsum sviðum, m.a. matvælaframleiðslu, nýsköpun, vísindarannsóknum og markaðssetningu. Fagráð fóru yfir umsóknir og skiluðu til stjórnar forgangsröðun verkefna eftir einkunnum ásamt umsögnum um hvert verkefni fyrir sig. Við mótun tillagna tók stjórn einnig tillit til búsetu, kyns umsækjenda og verkefnastjóra ásamt því að horft var til þess að skiptingin á milli atvinnugreina væri sem jöfnust. Ráðherra hefur nú úthlutað úr sjóðnum.

Bára: Styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð á síðustu fimm árum, sem og frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvælaframleiðslu.
36 verkefnum verður boðið til samninga um styrk úr Báru, fyrir alls 97 milljónir króna

Kelda: Styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.
Níu verkefnum verður boðið til samninga um styrk úr Keldu, fyrir alls 157 milljónir króna

Afurð: Styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Styrkveitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvælaframleiðslu og stuðla þar með að verðmætasköpun.
Átta verkefnum verður boðið til samninga um styrk úr Afurð fyrir alls 100 milljónir króna.

Fjársjóður: Styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðsinnviði og stuðla að markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu.
Níu verkefnum verður boðið til samninga um styrk úr Fjársjóði, fyrir alls 127 milljónir króna.

 

Áætlað er að Matvælasjóður muni hafa 628 milljónir til umráða á árinu 2021 og er stefnt á að opnað verði fyrir umsóknir í mars og að önnur úthlutun sjóðsins verði í maí 2021.

Hægt er að fylgjast með starfsemi sjóðsins á heimasíðunni www.matvælasjóður.is

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum