Hoppa yfir valmynd
7. janúar 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Öflugur liðsauki í skóla- og íþróttamálum

Donata H. Bukowska, Ingvi Hrannar Ómarsson, Óskar H. Níelsson og Örvar Ólafsson - mynd

Ráðið hefur verið í fjögur störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála, þar af eru tvö störf án staðsetningar í nýju skólaþróunarteymi ráðuneytisins. Störf án staðsetningar eru liður í aðgerðum stjórnvalda sem miða að því að að skapa betri tækifæri til atvinnu um allt land og jafna búsetuskilyrði. Sérfræðingar í skólaþróunarteyminu munu starfa þvert á fagskrifstofur menntamála og er einkum ætlað að fylgja eftir áherslum í nýrri menntastefnu til ársins 2030.

Í störfin hafa verið ráðin Donata H. Bukowska og Ingvi Hrannar Ómarsson. Ingvi mun sinna starfi sínu frá Sauðárkróki og er fyrsti starfsmaður ráðuneytisins sem ráðinn er í starf án staðsetningar. Ingvi hefur starfað sem verkefnastjóri og kennsluráðgjafi í skólaþróun, nýsköpun og upplýsingatækni hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Donata hefur starfað sem kennsluráðgjafi í málefnum nemenda með annað móðurmál í grunnskólum Kópavogs. Donata og Ingvi munu bæði hefja störf á næstu mánuðum.

Óskar H. Níelsson mun taka við starfi sérfræðings á sviði menntamála en hann flyst úr starfi frá Menntamálastofnun þar sem hann starfaði sem þróunarstjóri. Óskar hefur hafið störf hjá ráðuneytinu.

Örvar Ólafsson hefur verið ráðinn sérfræðingur á sviði íþróttamála en hann starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Örvar mun hefja störf hjá ráðuneytinu 1. febrúar næstkomandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum