Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2021 Matvælaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til apríl 2021

  - myndSebastian Holgado / Unsplash

Fimmtudaginn 14. janúar 2021 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1323/2020 fyrir tímabilið 1. janúar til 30. apríl 2021. Samtals bárust 23 gild tilboð í tollkvótann.

 

Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Þrettán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 536.000 kg. á meðalverðinu 177 kr./kg.  Hæsta boð var 620 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 232.000 kg. á meðalverðinu 330 kr./kg.

 

Svínakjöt í vörulið 0203. Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 651.300 kg. á meðalverðinu 106 kr./kg.  Hæsta boð var 303 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 233.000 kg. á meðalverðinu 204 kr./kg.

 

Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 894.700 kg á meðalverðinu 217 kr./kg.  Hæsta boð var 403 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 285.000 kg á meðalverðinu 357 kr./kg.

 

Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið ex0207. Fimm tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 154.000 kg á meðalverðinu 117 kr./kg.  Hæsta boð var 271 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 67.000 kg á meðalverðinu 239 kr./kg.

 

Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 131.000 kg. á meðalverðinu 40 kr./kg. Hæsta boð var 332 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá átta fyrirtækjum um innflutning á 33.000 kg. á meðalverðinu 147 kr./kg.

 

Ostar og ystingur í vörulið 0406. Fimmtán tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 300.000 kg. á meðalverðinu 305 kr./kg. Hæsta boð var 788 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 127.000 kg. á meðalverðinu 642 kr./kg.

 

Ostur og ystingur úr vörulið ex0406;...(**). Þrettán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið ex 0406...(**) samtals 404.550 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1323/2020 er tollkvóta úr vörulið ex0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 77.000 kg., til tíu fyrirtækja.

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

 

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Átján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 322.400 kg. á meðalverðinu 64 kr./kg.  Hæsta boð var 459 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tólf fyrirtækjum um innflutning á 83.000 kg. á meðalverðinu 233 kr./kg.

 

Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Nítján tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 426.100 kg. á meðalverðinu 128 kr./kg.  Hæsta boð var 561 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þrettán fyrirtækjum um innflutning á 133.000 kg. á meðalverðinu 329 kr./kg.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

 

 

Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Aðföng

9.714

Ásbjörn Ólafsson ehf

130.000

Ekran ehf

1.429

Garri ehf

10.000

Innnes ehf

8.000

Kjarnafæði ehf

25.000

Kjötmarkaðurinn ehf

8.000

Krónan ehf

6.000

Samkaup sf

13.857

Sælkeradreifing ehf

 

Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

25.000

Ásbjörn Ólafsson ehf

44.000

Ekran ehf

300

Innnes ehf

20.000

Kjarnafæði ehf

10.000

Kjötmarkaðurinn ehf

5.000

Krónan ehf

128.700

Mata ehf

 

Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

60.000

Aðföng

131.000

Ekran ehf

30.000

Innnes ehf

27.000

Kjarnafæði ehf

4.000

Kjötmarkaðurinn ehf

5.000

Krónan ehf

20.000

Stjörnugrís ehf

8.000

Sælkeradreifing ehf

 

Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu ex0207 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

67.000

Ekran ehf

 

Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

3.000

Aðföng hf

400

Ásbjörn Ólafsson ehf

7.000

Ekran ehf

700

Garri ehf

1.500

Innnes ehf

7.000

Krónan ehf

3.400

Sláturfélag Suðurlands ehf

10.000

Sælkeradreifing ehf

 

Ostur og ystingur 0406

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

20.000

Aðföng

3.000

Ásbjörn Ólafsson ehf

5.000

Garri ehf

22.000

Innnes ehf

16.000

Krónan ehf

1.500

Market ehf

2.000

Mini Market ehf

5.000

Mjólkursamsalan ehf

31.000

Natan &Olsen

3.500

Samkaup sf

15.000

Stjörnugrís ehf

3.000

Sælkeradreifing ehf

 

Ostur og ystingur ex 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 1323/2020

Úthlutað magn (kg)

Tilboðsgjafi

8.000

Aðföng

7.000

Danól ehf

11.550

Krónan ehf

11.550

Mata ehf

11.550

Mjólkursamsalan

11.550

Natan & Olsen ehf

800

Nautica ehf

1.000

Samkaup sf

10.000

Stjörnugrís ehf

4.000

Sælkeradreifing ehf

 

Pylsur og þess háttar vörur 1601

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

3.000

Aðföng

200

Ásbjörn Ólafsson ehf

700

Danól ehf

3.000

Ekran ehf

1.800

Family Ink ehf

1.500

Innnes ehf

9.000

Krónan ehf

17.000

Market ehf

32.700

Mini market ehf

4.500

Nautica ehf

1.600

Rain ehf

8.000

Sælkeradreifing ehf

 

Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602 

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

25.000

Aðföng

30.000

Ásbjörn ólafsson ehf

2.358

Danól ehf

5.000

Ekran ehf

8.000

Garri ehf

2.042

Innnes ehf

5.000

KFC ehf

20.000

Krónan ehf

3.000

Market ehf

6.000

Mini Market ehf

1.100

Rain ehf

5.000

Stjarnan ehf

20.500

Sælkeradreifing ehf

 

Reykjavík, 25. janúar 2021

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum