Hoppa yfir valmynd
26. janúar 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Um 3,7 milljarðar króna greiddir út í tekjufallsstyrki

Undanfarnar tvær vikur hafa um 3,7 milljarðar króna verið greiddir í tekjufallsstyrki til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Skatturinn fer með framkvæmd úrræðisins en styrkirnir sem þegar hafa verið greiddir út renna til um 540 aðila.

Tekjufallsstyrkir nýtast fjölmörgum rekstraraðilum sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli vegna faraldursins og er markmiðið að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%.

Tugir þúsunda nýtt úrræðin

Síðustu mánuði hafa á fjórða þúsund rekstraraðilar og tugþúsundir einstaklinga nýtt sér ýmis úrræði stjórnvalda sem eru á annan tug talsins – styrki, lán, gjaldfresti og annan stuðning. Þannig hafa um 1.450 rekstraraðilar fengið lokunarstyrki fyrir rúmlega 1,8 milljarða króna.

Hjá Skattinum er unnið að því að opna fyrir umsóknir um viðspyrnustyrki sem ætlað er að tryggja að fyrirtæki geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir og tryggt viðbúnað þegar úr rætist. Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu er enn fremur til skoðunar að leggja til breytingar á afborgunartíma stuðningslána.

Fjölmörg önnur úrræði hafa boðist vegna áhrifa Covid-19. Þar má nefna viðbótarlán, laun í sóttkví, ráðningarstyrki, hlutabætur, styrki til greiðslu launa á uppsagnarfresti, tekjutengdar atvinnuleysisbætur og frestun skattgreiðslna. Fjármála- og efnahagsráðuneytið heldur úti upplýsingasíðu um nýtingu úrræðanna. Sömuleiðis má kynna sér og sækja um opin úrræði á vef Skattsins.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum