Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2021 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra á viðburði um samskipti Íslands og Bandaríkjanna

Ráðherra á viðburði um samskipti Íslands og Bandaríkjanna - myndUtanríkisráðuneytið

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra tók í dag þátt í sérstökum viðburði um samskipti Íslands og Bandaríkjanna sem samtökin Meridian International Center í Washington DC stóðu fyrir. Lagði ráðherra áherslu á einstakt samband Íslands og Bandaríkjanna sem grundvallaðist á sameiginlegum gildum og hagsmunum og ætti rætur í tvíhliða öryggis- og varnarsamstarf ríkjanna.

„Milli landanna eru djúp menningartengsl og viðskiptatengslin skipta okkur afar miklu máli. Bandaríkin eru mikilvægasta útflutningsland okkar Íslendinga og nauðsynlegt verður að gæta að þeim hagsmunum hér eftir sem hingað til. Á síðustu fjórum árum hefur náðst góður árangur í þeim efnum og af okkar hálfu verður áfram unnið að því að tryggja sem best skilyrði fyrir viðskipti milli landanna.“ 

Þá ræddi Guðlaugur Þór samstarf ríkjanna á norðurslóðum sem aldrei hefur verið eins náið og undanfarin ár. Ný stjórnvöld í Bandaríkjunum leggja mikla áherslu á alþjóðasamstarf um aðgerðir gegn loftslagsvánni sem endurspeglar áherslur Íslands á norðurslóðum og víðar.

Að lokum svaraði ráðherra spurningum frá áhorfendum um fjárfestingaumhverfið á Íslandi, græna orkugjafa, áherslur í alþjóðamálum og áherslur í samskiptum íslenskra stjórnvalda við nýja ríkisstjórn Biden Bandaríkjaforseta. 

Meridian International er sjálfstæð og virt hugveita í Washington sem vinna að alþjóðasamskiptum og standa fyrir námskeiðum og fyrirlestrum ráðamanna og annarra víða að.

Hér má sjá upptöku af viðburðinum:

  • Ráðherra á viðburði um samskipti Íslands og Bandaríkjanna - mynd úr myndasafni númer 1

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum