Hoppa yfir valmynd
9. mars 2021 Dómsmálaráðuneytið

Ný framtíðarsýn fyrir sýslumenn

Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út skýrsluna Sýslumenn: Framtíðarsýn; umbætur á þjónustu og rekstri. Með skýrslunni er mótuð framtíðarsýn fyrir sýslumannsembættin, sem felur í sér að þar verði veitt framúrskarandi þjónustu óháð búsetu og staðsetningu, hvar og hvenær sem er, eftir því sem hentar almenningi hverju sinni.

Starfsemi sýslumanna hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum sem að miklu leyti má rekja til tækniframfara í samfélaginu. Til að embættin geti fylgt þróuninni þykir ljóst að styrkja þurfi tækniinnviði með því að hagræða miðað við núverandi rekstrarforsendur og þannig skapa  svigrúm í rekstri samhliða því að bæta þjónustuna.

Í skýrslunni er farið yfir stöðuna og þær áskoranir og tækifæri sem felast í breyttu verklagi vegna tækninýjunga, með hliðsjón af kröfum viðskiptavina embættanna til nútíma stjórnsýsluhátta.

Skýrslunni er ætlað að vera grunnur að frekari stefnumótun og skipulagningu sýslumannsembættanna, þar sem nútíma tækni er nýtt til að hagkvæmari rekstri og skilvirkari þjónustu.

Hér má lesa skýrsluna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum