Hoppa yfir valmynd
17. mars 2021 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Helga Sigríður skipuð í embætti rektors Menntaskólans við Sund

Helga Sigríður Þórsdóttir  - myndMYND: Sigurjón Ragnar / MS
Helga Sigríður Þórsdóttir hefur verið skipuð rektor Menntaskólans við Sund. Hún hefur gegnt starfi konrektors MS frá árinu 2017 en áður starfaði hún sem deildastjóri og aðstoðardeildarstjóri við leikskóla í Noregi. Auk þess að vera farsæll stjórnandi hefur Helga Sigríður reynslu af verkefnastjórn, stefnumótun og innleiðingu umbótaverkefna við skólann.

Helga Sigríður hefur lokið BA gráðu í uppeldisfræði, félagsfræði og sögu við Háskólann í Karlsruhe í Þýskalandi, BA gráðu í þýsku og félagsfræði frá Háskóli Íslands og MA gráðu í stjórnunarfræðum menntastofnanna frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún kennsluréttindi frá Kennaraháskóla Íslands.

Embætti rektors var auglýst 31. október sl. og sóttu þrjár konur um starfið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum