Hoppa yfir valmynd
24. mars 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Loftslagssjóður úthlutar 170 milljónum króna til 24 verkefna

Loftslagssjóður úthlutar 170 milljónum króna til 24 verkefna - myndBergþóra Njála

Loftslagssjóður hefur úthlutað 170 milljónum króna til 24 verkefna. Alls hlutu 12 nýsköpunarverkefni og 12 kynningar- og fræðsluverkefni styrk að þessu sinni. Hlutverk Loftslagssjóðs er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. 

158 umsóknir um styrki bárust sjóðinum að þessu sinni og voru 86 þeirra vegna nýsköpunarverkefna og 72 umsóknir vegna kynningar- og fræðsluverkefna. Sótt var alls um 1.1 milljarð króna, en 15% þeirra sem sóttu um í sjóðinn hlutu styrk.

„Stofnun Loftslagssjóðs árið 2019 var og er ein af aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum, segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Við þurfum margvíslegar lausnir til þess að takast á við loftslagsvána, þess vegna er nýsköpun svo mikilvæg. En við þurfum líka að tryggja fræðslu um loftslagsbreytingar, bæði um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og hvað fyrirtæki, einstaklingar og stjórnvöld eru að gera og geta gert til að sporna við loftslagsbreytingum. Það er einmitt þetta tvennt; nýsköpun og fræðsla, sem Loftslagssjóður eflir. Ég sendi styrkþegum hamingjuóskir.

Loftslagssjóður heyrir undir umhverfis- og auðlindaráðuneytið, en Rannís annast rekstur hans. Stjórn Loftslagssjóðs tekur ákvarðanir um úthlutanir í samræmi við reglur sjóðsins. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

Frétt og listi yfir styrkþega á vef Rannís

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum