Hoppa yfir valmynd
31. mars 2021 Matvælaráðuneytið

Þorsteinn Sigurðsson nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar

Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafrannsóknastofnunar - mynd

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna.

Þorsteinn Sigurðsson er með BS gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og Cand. Scient gráðu frá Háskólanum í Bergen. Þorsteinn hóf störf sem sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun árið 1994. Árin 2005 til 2016 starfaði hann sem forstöðumaður nytjastofnasviðs og frá árinu 2016 til 2019 var hann forstöðumaður sviðs uppsjávarlífríkis. Árið 2020 hóf hann störf sem sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fiskeldis í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, nú skrifstofa sjávarútvegsmála. Alls bárust sex umsóknir um embætti forstjóra Hafrannsóknarstofnunar, en umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar 2021 og mat hæfn­is­nefnd þrjá umsækj­endur vel hæfa til þess að gegna embættinu.

Ráðherra var sammála mati nefndarinnar og boð­aði í kjölfarið þá þrjá sem metnir voru hæfastir í við­tal þar sem ítar­lega var farið ofan í ein­staka þætti starfs­ins. Var það mat ráð­herra, að Þorsteinn væri hæfastur umsækj­enda til að stýra Hafrannsóknastofnun til næstu fimm ára.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum